Styrkir aðildarfélaga ÖBÍ
Námsstyrkir
| Aðildarfélag | Tegund styrks | Styrkir veittir til |
|---|---|---|
| Blindrafélagið | Hjálpartækjasjóður |
félagsmanna Blindrafélagsins eldri en 18 ára, fyrir hjálpartæki sem ekki eru niðurgreidd af opinberum aðilum. Úthlutunarreglur. |
| Blindrafélagið | Námssjóður | félagsmanna Blindrafélagsins sem stunda eða hyggja á nám við viðurkenndar menntastofnanir. Rafræn umsókn. |
| Blindrafélagið | Styrktarsjóður Margrétar Jónsdóttur | foreldra/forráðamenn barna allt að 18 ára aldri sem greinst hafa blind eða með alvarlega augnsjúkdóma. Veitir einungis styrki vegna verkefna eða hluta sem eru ekki styrktir af almannatryggingum. |
| Blindrafélagið | Menntunarsjóður til blindrakennslu | kennara og annars fagfólks til sérnáms hérlendis og erlendis sem tengist kennslu og þjónustu við blinda. |
| Blindrafélagið | Sjóðurinn Blind börn á Íslandi | blindra og sjónskertra barna að 18 ára aldri til kaupa á t.d. sérhönnuð leikföng, leiktæki, hljóðfæri, tölvur og annað slíkt sem opinberir aðilar styrkja ekki. |
| Blindrafélagið | Ráðstefnustyrkir til fagfólks | fagfólks sem vinnur að málefnum blindra og sjónskertra til þátttöku í ráðstefnum, námsstefnum, námskeiðum og sýningum erlendis. |
| Blindrafélagið | Hvatningastyrkir Blindrafélagsins |
félagsmanna á aldrinum 18 ára og eldri. Hvatningarstyrki sem tengjast atvinnu, listum, menningu, afreksíþróttum og öðrum aðstæðum þar sem tekist er á við spennandi og óhefðbundin verkefni. |
| Blindravinafélag Íslands | Þórsteinssjóður | að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla Íslands. Ennig til að efla rannsóknir á öllum fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn. |
| Félag heyrnarlausra | Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra |
fullgildra félagsmanna Félagi heyrnarlausra til menntunar heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra, formlegrar og óformlegrar og einnig starfsþjálfunar. |
| Félag heyrnarlausra | Styrktarsjóður Bjargar Símonardóttur | að styrkja textun eða túlkun á leikritum, kvikmyndum, fræðslu- og heimildarmyndum Rétt til umsóknar hafa, framleiðendur og rétthafar íslensks sjónvarpsefnis, kvikmynda og fræðsluefnis á myndböndum og einnig leikhús. |
| Félag nýrnasjúkra | Styrktarsjóður Félags nýrnasjúkra | að aðstoða nýrnasjúka á margvíslegan hátt, svo sem með styrkveitingum til efnalítilla einstaklinga og styrkjum til að afla þekkingar í þágu nýrnasjúkra og til að byggja upp og bæta tækjakost á skilunardeild og nýrnadeild. |
| Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra (FSFH) |
Ferðastyrkur | félagsmönnum FSFH og fjölskyldum þeirra vegna ferðalaga erlendis. |
| Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra (FSFH) | Aðrir styrkir |
(relgur í endurskoðun janúar 2011 |
| Gigtarfélag Íslands | Þorbjargarsjóður | gigtarsjúklinga og einkum ungra gigtarsjúklinga til náms. |
| Gigtarfélag Íslands | Vísindasjóður | eflingar rannsóknaog þróunar vísinda innan gigtsjúkdómafræðinnar. |
| Sjálfsbjörg lsf. | Hjálparliðasjóður Sjálfsbjargar | hreyfihamlaðra til að gera þeim kleift að ferðast innanlands og utan á jafnréttisgrundvelli. Sjóðurinn útvegar hreyfihömluðum hæfan hjálparliða, heldur námskeið fyrir hjálparliða. |
| Sjálfsbjörg lsf. | Minningarsjóður Jóhanns Péturs Sveinssonar | |
| Sjálfsbjörg lsf. | Minningarsjóður Theódórs A. Jónssonar | |
| Sjálfsbjörg lsf. | Styrktarsjóður Sjálfsbjargar | |
| Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra | Sjóður Kristínar Björnsdóttur | að aðstoða fötluð börn og ungmenni s.s. til menntunar og sérmenntunar í samræmi við hæfni þeirra og möguleika, þannig að þau fái sem líkasta uppvaxtarmöguleika og heilbrigð börn. |
