• Afmælislogo ÖBÍ 50 ára

Öryrkjabandalag Íslands 50 ára!

5.5.2011

Stofnfundur bandalagsins var 5. maí 1961

Stofnfélögin voru sex:

  • Ás styrktarfélag (sem þá hét Styrktarfélag vangefinna), 
  • Blindrafélagið
  • Blindravinafélag Íslands
  • SÍBS - Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga
  • Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra
  • Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra  (SLF)

Fyrsta stjórn ÖBÍ var skipuð einum fulltrúa frá hverju þessara félaga. Mynd hér hægra megin á síðunni sýnir fyrstu stjórn ÖBÍ ásamt framkvæmdastjóra, talið frá vinstri :

  • Andrés Gestsson, BlindrafélaginuFyrsta stjórn ÖBÍ
  • Einar Eysteinsson, Blindravinafélaginu
  • Sveinbjörn Finnsson, Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra
  • Oddur Ólafsson, SÍBS og fyrsti formaður ÖBÍ
  • Sigríður Ingimarsdóttir, Styrktarfélagi vangefinna (nú Ás styrktarfélag)
  • Zophanías Benediktsson, Sjálfsbjörg landssambandi fatlaðra
  • Guðmundur Löve, fyrsti framkvæmdastjóri ÖBÍ

Heimildarmynd frumsýnd um 50 ára sögu bandalagsins.

Af tilefni 50 ára afmælisins var afmælisfagnaður 5. maí sl., á Hilton Reykjavik Nordica Hótel, þar sem meðal annars var frumsýnd heimildarmyndin Eitt samfélag fyrir alla, Öryrkjabandalag Íslands í 50 ár.“ Rauður þráður myndarinnar er mannréttindabarátta.

Þetta er í fyrsta sinn sem gerð er heimildarmynd um ÖBÍ en höfundur myndarinnar Páll Kristinn Pálsson hefur unnið að gerð hennar undanfarið ár. Fjallað er um sögu bandalagsins í máli og myndum. Efniviðurinn kemur að megninu til frá sjónvarpi RÚV, Kvikmyndasafni Íslands, persónulegum myndasöfnum og miklum fjölda viðtala sem Páll tók við marga af upphafsmönnum bandalagsins og fyrrum stjórnar- og starfsmönnum.

Kíkið á heimildarmyndina á heimasíðu ÖBÍ.

Útgáfa bókar og sögusýning um sögu ÖBÍ í 50 ár í Bákarkápa 50 ára sögu ÖBÍRáðhúsi Reykjavíkur.

Þann 14. nóvember var útgáfuhóf í tilefni útkomu bókarinnar Eitt samfélag fyrir alla, saga Öryrkjabandalags Ísalnds 1961-2011. Við það tilefni var opnuð sögusýning í Ráðhúsi Reykjavíkur sem stóð í 3 vikur.

Segðu frá





Þetta vefsvæði byggir á Eplica