Skip to main content
Frétt

Finnland hefur fullgilt SRFF

By 17. maí 2016No Comments

Finnland hefur nú gengið frá fullgildingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Ísland er nú eina landið í Evrópu ásamt Írlandi sem ekki hefur fullgilt þennan mannréttindasamning. SRFF er alþjóðasamningur sem felur í sér skyldur aðildarríkja til þess að tryggja réttindi fatlaðs fólks. Í samningnum segir:

„Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að tryggja og stuðla að því að öll mannréttindi og grundvallarfrelsi verði í einu og öllu að veruleika fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi vegna fötlunar.“

Samningurinn er leiðarvísir að því hvernig tryggja skal fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri til jafns við aðra í lífinu og gera því þannig kleift að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Undirritanir þjóðríkja hófust hjá Sameinuðu þjóðunum þann 30. mars 2007. Ísland undirritaði samninginn þann dag ásamt valfrjálsri bókun, án fyrirvara. Nú í maí árið 2016 er Ísland ásamt Írlandi einu ríkin í Evrópu sem ekki hafa fullgilt samninginn. ÖBÍ hefur lagt ríka áherslu á að samningurinn verði fullgiltur á Íslandi.

Frétt af Facebooksíðu Sameinuðu þjóðanna um fullgildingu Finnlands.