Skip to main content
Frétt

Frestur til að senda inn tilnefningar framlengdur til 1. október

By 20. september 2016No Comments

Nefnd um Hvatningarverðlaun ÖBÍ hefur ákveðið að framlengja frest til að senda inn tilnefningar til 1. október næstkomandi. Verðlaunin verða veitt í tíunda sinn laugardaginn 3. desember næstkomandi, á alþjóðadegi fatlaðs fólks.

Markmið verðlaunanna er að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk og vekja athygli á þeim sem þykja skara fram úr og endurspegla nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.

Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum:

• Flokki einstaklinga.
• Flokki fyrirtækja/stofnana.
• Flokki umfjöllunar/kynningar.

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, er verndari verðlaunanna.

Tilnefningar óskast fyrir miðnætti að kvöldi 15. september 2016

Þær má senda með rafrænu eyðublaði á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni:
http://www.obi.is/is/um-obi/hvatningarverdlaun-obi/hvatningarverdlaun-eydublad

Einnig er hægt að senda tilnefningar í bréfpósti ti:

ÖBÍ
Sigtúni 42
105 Reykjavík