Skip to main content
Frétt

Harmar niðurstöðu Hæstaréttar

By 2. desember 2016No Comments

Yfirlýsing Ellenar Calmon, formanns ÖBÍ, vegna niðurstöðu Hæstréttar í máli Salbjargar Óskar Atladóttur:

Samningur sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var á dögunum fullgiltur á Íslandi. Í 19. gr. samningsins segir að fatlað fólk eigi rétt á sjálfstæðu lífi og jafnframt rétt því að „velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra.“ Aðildarríki samningsins eru skuldbundin til þess að grípa til árangursríkra og viðeigandi ráðstafana til þess að fatlað fólk geti nýtt sér rétt sinn samkvæmt greininni. Ég harma því niðurstöðu Hæstaréttar frá því gær í máli Salbjargar, sem gerði þá sjálfsögðu kröfu að fá að velja sér búsetustað og gerði einnig þá kröfu að tryggja sitt einkalíf eins og aðrir.

Í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar og aðildar Íslands að samningnum verður Alþingi að grípa til tafarlausra ráðstafana til þess að sjálfsagður réttur fatlaðs fólks verði að veruleika. Þetta, ásamt því að lögfesta Samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður að vera forgangsmál næstu ríkisstjórnar.

Umfjöllun RÚV um úrskurð Hæstaréttar í máli Salbjargar

Umfjöllun Fréttatímans um úrskurð Hæstaréttar í máli Salbjargar