Nám og fræðsla
Nám og fræðsla
Í dálknum hér vinstra megin eru flýtileiðir inn á nokkrar heimasíður stofnana sem sinna starfsþjálfun og endurmenntun. Ef þú lest áfram fæst örstutt lýsing á sömu aðilum. Þar á eftir eru tenglar inn á framhalds-, iðn- og háskóla, einnig símenntunar- og fræðslumiðstöðvar.
Skjótt skipast veður í lofti ... segir gott máltæki og er lýsandi fyrir það hve snögglega staða manna getur breyst. Líf og heilsa okkar er fallvölt. Í mörgum tilfellum nægir ekki að komast í líkamlega og andlega endurhæfingu til að byggja sig upp eftir veikindi eða slys. Heldur þarf að byggja sig upp félagslega að nýju með til dæmis starfsþjálfun og endurmenntun.
Hér fara á eftir upplýsingar um fjölda skóla sem bjóða upp á úrræði. Með fjarnámi hefur aðgangur að námi skánað mjög fyrir alla þá sem nýtt geta sér tölvur. Starfsþjálfun er víða í boði sem undirbýr einstaklinginn meðal annars fyrir að takast á hendur störf á almennum vinnumarkaði.
Tölvumiðstöð fatlaðra (TMF) - veitir ráðgjöf til einstaklinga og hópa varðandi tölvutengdan búnað sem nýtist fólki með mismunandi fatlanir. Ráðgjöf er veitt til skóla og stofnana og getur ýmist farið fram hjá TMF eða úti í hinum einstöku skólum eða stofnunum. Fræðsla, leiðsögn og samvinna kennara, foreldra og iðjuþjálfa tryggja að nemandi fái búnað við sitt hæfi.
Hlutverk - Samtök um vinnu og verkþjálfun hefur innan sinna vébanda 23 félög sem sinna fjölbreytilegri starfsþjálfun.
Fjölmennt - er miðstöð símenntunar sem þjónar fötluðu fólki, 20 ára og eldri. Stefna Fjölmenntar er að skapa fólki með fötlun möguleika til aukinnar þátttöku í lífi og starfi samfélagsins á við aðra þjóðfélagsþegna.
Hringsjá - starfsþjálfun fatlaðra byggir á fjölbreyttri stundaskrá. Í boði eru einstök námskeið og þriggja anna nám, æ fleiri sem þaðan útskrifast halda í framhaldsnám.
Framhaldsskólar - bjóða upp á margbreytilegt nám í dag og sumir skólanna bjóða sérstaka þjónustu við þá einstaklinga sem þurfa séraðstoð. Tengill inn á heimasíður allra framhaldsskóla á landinu.
Fjarnám - er hægt að stunda bæði á framhalds- og háskólastigi og stöðugt bætast við valkostir til náms gegnum tölvur.
Háskólanám - mjög góðar upplýsingar má finna inn á heimasíðu Háskóla Íslands undir tenglunum: háskólar á Íslandi, og háskólar erlendis (texti á ensku).
Símenntunar- og fræðslumiðstöðvar:
Símenntunarmiðstöðvar (allt landið sýnt með korti á heimasíðu Mennta- og menningarmálaráðuneytis)
Iðan - vefur fyrir ungt fólk um íslenskan iðnað

