Fjölmennt - miðstöð símenntunar

Fjölmennt er miðstöð símenntunar sem þjónar fötluðu fólki 20 ára og eldri. Boðið er upp á fjölþætta símenntun og ráðgjöf í þeim tilgangi að auka lífsgæði og almenna lífsleikni. Leitast er við að veita þjónustu á landsvísu eftir því sem fjárveitingar leyfa. Sjá námskeið Fjölmenntar.

Hlutverk Fjölmenntar byggist á markmiðsgrein skipulagsskrár (3. grein), og einnig á alþjóðlegum samþykktum, svo sem Grunnviðmiðum Sameinuðu þjóðanna, Salamanca­yfirlýsingunni (einkum grein 56 og 57) og markmiðsgrein gildandi laga um málefni fatlaðra.

Framtíðarsýn Fjölmenntar er að leitast við að byggja upp fjölþætta starfsemi í samræmi við hlutverk sitt. Megingildi Fjölmenntar eru jafnræði, samskipan, virðing, fjölbreytni, fullgild þátttaka, metnaður, framþróun,

Þjónustustefnu Fjölmenntar er skipt í þrjá meginþætti. Sjá nánar um þjónustustefnuna.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica