Stæðiskort - „P-merki"
Samkvæmt reglugerðinni gildir eftirfarandi:
stæðiskort eru gefin út á persónu, ekki bílnúmer.
eldri kort (útgefin af Sjálfsbjörg) gilda út sinn gildistíma, þó svo korthafi skipti um bíl.
Umsókn þarf að fylgja:
Umsóknareyðublöð um „P-merki" stæðiskort , á lögregluvefnum.
ATH! Einstaklingar búsettir á höfuðborgarsvæðinu sækja um á skrifstofu Sýslumannsins í Kópavogi, Dalvegi 18, 200 Kópavogi.
Einstaklingar búsettir í öðrum sveitarfélögum sækja um hjá sýslumönnum á hverjum stað.
Hægt er að sækja um í viðkomandi afgreiðslu og skila inn fylgiskjölum og gefa rithandarsýnishorn um leið. Hins vegar er einnig hægt að senda umsókn ásamt fylgiskjölum og gefa rithandarsýnishorn þegar merkið er sótt.