Örorka-mat/-bætur/-lífeyrir

Örorkulífeyrir fæst hvar?

Fullt svar:

Öorkulífeyrir getur verið tvennskonar. Annars vegar sá sem greiddur er frá Tryggingastofnun ríkisins samkvæmt almannatryggingalögum. Hins vegar áunnin réttindi hjá lífeyrissjóði/um sem hlutfalla af launum á fyrri árum sem greiðist frá þeim lífeyrissjóði/um sem greitt hefur verið til.

Skilyrði örorkulífeyris frá Tryggingarstofnun ríkisins.

Örorkulífeyrir almannatrygginga er oft einnig nefndur grunnlífeyrir örorku.
Rétt til örorkulífeyris eiga þeir sem eru metnir 75% öryrkjar, eru á aldrinum 16-67 ára og hafa haft búsetu á Íslandi eða í EES-landi að minnsta kosti síðustu þrjú árin áður en sótt er um lífeyri. Örorkumatið byggir á læknisfræðilegum forsendum.
Sjá nánar á heimasíðu Tryggingastofnunar ríkisins

Skilyrði örorkulífeyris lífeyrissjóða.

Orkutap: Það skilyrði er sett hjá lífeyrissjóðum fyrir örorkulífeyri að sjóðfélaginn hafi orðið fyrir slysi eða sjúkdómi sem skerðir getu hans til að gegna því starfi sem veitti honum aðild að lífeyrissjóðnum og að hann hafi sannanlega orðið fyrir tekjumissi af völdum orkutapsins. Miðað er við að orkutapið sér 50% eða meira. Einnig að greitt hafi verið að minnsta kosti tvö til þrjú ár í lífeyrissjóð.
Reglur geta verið nokkuð mismunandi eftir sjóðum. Kannið vel hjá þeim lífeyrissjóði/um sem greitt hefur verið til hver rétturinn er. Tengla inn á heimasíður lífeyrissjóða má finna undir lífeyrissjóðir og lífeyrir á vef ÖBÍ.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica