Tölvumiðstöð fatlaðra

Tölvumiðstöð fatlaðra (TMF)

Tölvumiðstöð fatlaðra (TMF) var stofnuð að tilstuðlan svokallaðs SAFÍR hóps haustið 1985. Hún tók síðan til starfa í janúar 1987. Starfsemin lá niðri um tíma en haustið 1992 var núverandi forstöðumaður Sigrún Jóhannsdóttir ráðin.

Félögin sem stóðu að stofnun Tölvumiðstöðvar fatlaðra mynda nú stjórn hennar. Þau eru: Blindrafélagið, Félag heyrnarlausra, Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands. Rekstur Tölvumiðstöðvar fatlaða hefur að mestu verið fjármagnaður af Félagsmálaráðuneytinu.

Þjónustu Tölvumiðstöðvar fatlaðra er fjóraþætti;

  1. Ráðgjöf sem felur í sér mat á þörf fyrir tölvubúnað, val á búnaði, prófun og leiðsögn í notkun búnaðar. Ráðgjöfin er einstaklingsmiðuð og er unnin í samvinnu við aðila úr nánasta umhverfi skjólstæðings.
  2. Ráðgjöf til hópa s.s. kennara, iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, foreldra og fatlaða einstaklinga þar sem fram fer kynning á lausnum og eða kennsla í að nota ákveðinn búnað og forrit sem nýst getur tilteknum hópi. Sífellt fleiri hópar telja það eðlilegan þátt í starfsemi sinni að leita reglulega til Tölvumiðstöðvar um ráðgjöf.
  3. Námskeið og upplýsingamiðlun. Tölvumiðstöðin leitast við að fylgjast vel með nýjungum í tækni, notkun og aðferðum. Haldin eru námskeið reglulega þar sem upplýsingum er miðlað, leiðbeint og hvatt til notkunar með það að leiðarljósi að búnaður komi að sem bestum notum. Fræðslufundir og námskeið eru vaxandi þáttur í starfsemi miðstöðvarinnar.  
  4. Tengslahlutverk, samþætting. Tölvuvæðing og tölvunotkun hefur stóraukist á undanförnum árum. Samráð og upplýsingastreymi milli aðila verður því sífellt mikilvægara. Tölvumiðstöðin leggur áherslu á að aðilar sem tengjast einstökum málum vinni saman að settu marki og að samræming sé milli aðgerða. Hvatning og leiðsögn varðandi það hvernig búnaður og forrit nýtist einstaklingi sem best þarf að vera stöðugt vakandi ferli.

Sjá nánar um Tölvumiðstöð fatlaðra á heimasíðu hennar www.tmf.is




Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.