Réttur þinn

Réttur þinn til greiðslu úr sjúkrasjóði, sjúkradagpeninga, örorkubóta, örorkustyrks, endurhæfingarlífeyris

Í dálknum hér vinstra megin eru flýtileiðir inn á ítarlegri upplýsingar um nokkur ólík réttindi. Ef þú lest áfram fæst örstutt lýsing á sömu réttindum. Þar eru einnig tenglar inn á undirflokkana hér til vinstri.

Þegar veikindi herja á þekkja margir þann rétt sem þeir eiga hjá sínu stéttarfélagi varðandi veikindadaga á launum, sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði og fleira. Hafa ber í huga að þessi kjör geta verið mismunandi eftir stéttarfélögum. Fyrning á áunnum réttindum er einnig misjöfn. Sjá nánar í stéttarfélög og sjúkrasjóðir.

Endurhæfingarlífeyrir

Þegar greiðslum frá stéttarfélögum lýkur og batahorfur eru verulegar, er í mörgum tilfellum hægt að sækja um endurhæfingarlífeyri. Sjá nánar í örorkumat og bætur og í stéttarfélög og sjúkrasjóðir.

Fjárhagsleg aðstoð

Sveitarfélögum ber að veita þeim einstaklingum fjárhagsaðstoð sem ekki njóta fulls stuðnings frá sínu stéttarfélagi í veikindum eða hafa einhverra hluta vegna ekki verið á vinnumarkaði. Sama gildir t.d. einnig ef einstaklingur sem er á leið í endurhæfingu lendir á biðlista og fær þá ekki greiddan endurhæfingarlífeyri. Sjá nánar í sveitarfélög og afslættir.

Örorkumat

Í mörgum tilfellum fæst ekki fullur bati og skerðing er orðin á starfsorku. Einstaklingurinn óskar því eftir örorkumati í samráði við lækni sinn. Sjá nánar í örorkumat og -bætur.

Lífeyrissjóðir

Þeir sem metnir eru með 50% örorku eða meira (athugið að sérstakt mat lífeyrissjóðanna er ekki sambærilegt mati TR) og verið hafa á vinnumarkaði eiga rétt hjá lífeyrissjóði/um sem þeir hafa greitt til. Sá réttur getur verið mjög mismikill; fer eftir tímalengd sem greitt hefur verið í sjóðinn, launum sem einstaklingurinn hafði fyrir tekjutap og reglum sjóðsins. Sjá nánar í lífeyrissjóðir - lífeyrir.

Afslættir og ívilnanir

Í undirflokkum hér vinstra megin á síðunni eru þrír tenglar inn á mismunandi upplýsingar um afslætti og ívilnanir.  Afslættir af tekjustofni vegna mikilla fjárútláta vegna veikinda og lækniskostnaðar eru liðir sem of fáir virðast vita af. Því er hvatt til að menn kynni sér það nánar í skattalög og afslættir.

Fleiri vita af afslætti sem býðst hjá sveitarfélögum vegna fasteignagjalda, heimaþjónustu og fleira. Hvað fleira býðst? Hafið í huga að upphæðir eru misjafnar eftir sveitarfélögum.  Nánar um það í sveitarfélög og afslættir.

Aðildarfélög ÖBÍ hafa sum hver náð að semja um afslætti fyrir sína félagsmenn. ÖBÍ hefur einnig náð samningum við nokkra aðila, sjá ýmsir afslættir.

Lög og reglugerðir

Til að fólk geti aflað sér nánari upplýsinga um rétt sinn hefur verið tekinn saman listi yfir grunnlög sem snúa að málaflokknum og einnig mikill fjöldi reglugerða. Sjá nánar í lög og reglugerðir.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.