Lífeyrisjóðir-lífeyrir
Lífeyrissjóðir og örorkulífeyrir
Öllum ber skylda að greiða í lífeyrissjóð af sínum launatekjum. Við orkutap getur myndast réttur til að sækja um örorkulífeyri hjá þeim lífeyrissjóði eða -sjóðum sem greitt hefur verið til. Sjóðfélagi á rétt á örorkulífeyri ef hann verður fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira, hefur greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. tvö ár og orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutapsins. Sjá lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða 1997 nr. 129 (23. desember)
Örorkulífeyri skal framreikna samkvæmt reglum sem nánar er kveðið á um í samþykktum hvers lífeyrissjóðs, enda hafi sjóðfélagi greitt til lífeyrissjóðs í a.m.k. þrjú ár á undanfarandi fjórum árum, samanber 15. grein laga nr. 129/1997.
Í samþykktum lífeyrissjóða skulu sett frekari ákvæði um örorkulífeyri, svo sem um örorkumat, fjárhæð örorkulífeyris, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans. Ramminn sem lífeyrissjóðirnir þurfa að hlíta er skilgreindur í 29. grein laga nr. 129/1997. Samþykktir geta verið mismunandi eftir sjóðum, því er mikilvægt að kynna sér vel reglur þess sjóðs eða þeirra sjóða sem greitt hefur verið í um ævina.
Vert er að hafa í huga að brúttógreiðsla sem fæst frá lífeyrissjóði/-sjóðum skerðir alla bótaflokka almannatrygginga.
Margir smærri lífeyrissjóðir hafa nú verið sameinaðir öðrum og hafa skipt um nafn. Leita má til Landssambands lífeyrissjóða , sími 563-6450, til að finna út hvaða sjóði fyrrum sjóður hefur sameinast.
Tenglar á alla stærstu lífeyrissjóðina. (opnast í nýjum glugga á heimasíðu Landssambands lífeyrissjóða)

