Örorkumat og - bætur

Örorkumat og bætur

Á heimasíðu Tryggingastofnunar ríkisins www.tr.is er að finna upplýsingar um hvernig sækja skal um þær bætur sem lög 100/2007 um almannatryggingar og lög 99/2007 um félagslega aðstoð segja til um. Hér fyrir neðan eru tekin saman þau aðalatriði sem snúa að umsóknum um grunnbótaflokka örorkulífeyris, útreikning bóta og tengla á gögn með ítarlegri upplýsingum.

Grunnbótaflokkar örorku:

  • Endurhæfingar/örorkulífeyrir
  • Aldurstengd örorkuuppbót
  • Tekjutrygging
  • Heimilisuppbót (eingöngu fyrir þá sem búa einir ekki hjón eða sambúðarfólk)

Sjá nánar á heimasíðu TR um aðra bótaflokka, afslætti, upphæðir og greiðsluþátttöku almannatrygginga

Fjárhæðir bótaflokka almannatrygginga (opnast á heimasíðu TR.

Endurhæfingarlífeyrir

Þegar batahorfur eru verulegar og endurhæfing er að hefjast eða hafin á endurhæfingarlífeyrir að standa einstaklingnum til boða. Læknir eða læknar sjúklingsins eiga að aðstoða hann við að sækja um slíkt tímanlega áður en sjúkrasjóðsgreiðslur falla út. Læknirinn þarf að skila greinargóðu vottorði um veikindin með umsókn um endurhæfingarlífeyri til Tryggingastofnunar.

Örorkulífeyrir

Í sumum tilfellum fæst ekki fullur bati og skerðing til frambúðar er orðin á starfsorku. Einstaklingurinn óskar því eftir örorkumati í samráði við lækni sinn. Læknirinn fyllir út sérstakt vottorð um örorkumat sem þarf að vera greinargott og lýsa veikindum vel. Læknirinn getur einnig sent vottorðið beint til læknasviðs Tryggingastofnunar.

Umsækjandi fyllir út umsóknareyðublaðið um örorkulífeyri. Umsókninni þurfa að fylgja gögn sem eru tilgreind á eyðublaðinu. Einnig má hringja í Tryggingastofnun í síma 560-4400 og fá umsókn og spurningalista vegna færniskerðingar sent heim. Tenglar á eyðublöð Tryggingastofnunar:

Umsókn um örorkulífeyri og tengdar greiðslur

Spurningalisti vegna færniskerðingar umsækjanda þarf að fylgja umsókn.

Starfsmatsnefnd tryggingalækna hjá Tryggingastofnun kallar einstaklinginn því næst í læknisfræðilegt mat. Þegar farið hefur verið yfir vottorð lækna og matsskýrslu tryggingalækna (sjá tengil á örorkumatsstaðal hér neðar) berst niðurstaða mats til umsækjanda.

Örorkumatsstaðall

Reiknhildur - er reiknivél Tryggingastofnunar sem reiknar út bótarétt til leiðbeiningar um hugsanlegar greiðslur samkvæmt grunnbótaflokkunum sem taldir eru upp hér fyrir ofan. Aðrir bótaflokkar reiknast ekki þar inn nema heimilisuppbót. Athugið að reiknivélin er því ekki 100% rétt. Þegar fært er inn í reiti reiknilíkansins þarf að setja inn heildartekjur (brúttó), ekki útborgaðar tekjur fyrir árið. Niðurstöður útreikningsins eru aftur á móti á mánaðargrundvelli. Athugið einnig að flestir bótaflokkarnir eru tekjutengdir og tekjur skerða bætur.

Tekjur teljast allar greiðslur sem skattur er tekinn af, sem dæmi; eigin launatekjur, laun maka, greiðslur frá lífeyrissjóðum, séreignarlífeyrissparnaður, fjámagnstekjur, ýmsir styrkir og fleira.

Tekjuáætlun

Í lok nóvember eða byrjun desember sendir Tryggingastofnun frá sér eyðublaðið Tekjuáætlun fyrir tekjur komandi árs. Mikilvægt er að fara vel yfir þær tölur sem þar eru fram settar og leiðrétta ef með þarf, nánari upplýsingar um tekjuáætlun

Í lögum um almannatryggingar númer 117/1993, 47. grein, 4. málsgrein segir meðal annars: Starfsfólk Tryggingastofnunar og umboðsmenn hennar skulu kynna sér til hlítar aðstæður umsækjenda og bótaþega og gera þeim grein fyrir ýtrasta rétti þeirra samkvæmt lögum þessum.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.