Stéttarfélög og sjúkrasjóðir

Stéttarfélög og sjúkrasjóðir

Þeir sem slasast eða veikjast og hafa stundað fulla vinnu eiga rétt á greiðslu veikindadaga, sjúkradagpeninga, úr sjúkrasjóði síns stéttarfélags. Sjá lög Alþýðusambands Íslands (ASÍ) um sjúkrasjóði.

Fyrir þá sem ekki voru í fullri vinnu reiknast hlutfall greiðslu í samræmi við hlutfall vinnu. Misjafnt getur verið eftir stéttarfélögum hve há upphæðin er og einnig hvernig reiknireglur eru.

Athugið að kynna ykkur og sækja áunnin réttindi sem allra fyrst, því víða fyrnast réttindin innan fárra mánaða.

Hér fyrir neðan er tengill inn á heimasíðu Finna.is, þar sem öll stéttarfélög eru listuð í stafrófsröð. Einnig eru tenglar á stéttarfélög flokkuð eftir samböndum og bandalögum:

Listi yfir öll stéttarfélög

ASÍ (Alþýðusamband Íslands) - aðildarfélög

BSRB (Bandalag starfsmanna ríkis og bæja) - aðildarfélög

BHM (Bandalag háskólamanna) - aðildarfélög

KÍ (Kennarasamband Íslands) - aðildarfélög



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.