Ýmsir afslætti

Afslættir sem ÖBÍ hefur samið um við fyrirtæki:

Fosshótel

Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands, gildir til 15. maí 2011. Allir sem geta framvísað örorkuskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins geta nýtt sér þau kjör er samningurinn kveður á um.

Fosshótel bjóða gistingu á öllum hótelum keðjunnar tímabilið;

15. maí -14. sept. 2010 kr. 10.000 nóttin

15. september 2010-15. maí 2011 kr. 9.000 á nóttina.

Verðið gildir fyrir einsmanns og tveggjamanna herbergi með baði og morgunverð.

Heilsárshótel eru:

Fosshótel Lind, og Baron í Reykjavík, Fosshótel Reykholt, Borgarfirði, Fosshótel Húsavík og Fosshótel Dalvík.

Aðgengi

Aðgengi fyrir hjólastóla er í lagi með fyrirvara á eftirtöldum hótelum, Fosshótel Húsavík, Fosshótel Baron og Fosshótel Reykholti. Opinbera úttekt á þeim hefur ekki verið gerð og því er þessi fyrirvari settur. Unnið er að úttekt á hótelunum með tilliti til aðgengis fyrir alla.

Aðrir sem veita afslátt:

Byggt og búið, sím 568-9400 

Veitir öryrkjum 10% afslátt gegn framvísun örorkuskírteinis. Þetta gildir á flestum vörum en þó eru nokkrar undantekningar:

1. Ekki má gefa aukaafslátt á vörum sem þegar eru á afslætti.

2. Á sumum vörum er ekki gefinn meiri en 5% afsláttur.

Upplýsingar um hvaða vörur það eru er á lista í verslununum.

Strætó.is góður afsláttur til öryrkja af 20 miða korti. Framvísa þarf örorkuskírteini frá TR í miðaafgreiðslum Strætó.





Þetta vefsvæði byggir á Eplica