Aðgengi

Aðgengi

Gott aðgengi er mikilvægt öllum ekki bara fötluðum.

Aðgengilegar byggingar, samgöngutæki og frágangur umhverfis á almenningstöðum, svo sem stígar o.fl., gera hreyfihömluðum kleift að komast um á eigin forsendum og án hjálparfólks. Slíkar úrbætur nýtast einnig barnafólki og eldri borgurum svo einhver dæmi séu tekin. Á þessari síðu sem enn er í vinnslu verður tekið saman efni um aðgengismál ábendingar um efni sem fellur undir þenna flokk eru vel þegnar. Vinsamlega sendið á tölvupóstfangið obi(@)obi.is

Gott aðgengi-Access Iceland, er upplýsinga- og þjónustuvefur sem Aðgengi ehf er að byggja upp. Þar verður auðvelt að leita sér upplýsinga um hvar aðgengilega staði er að finna. Byggt er á merkjakerfi sem er skipt í 7 flokka fötlunar. Vottun er veitt á mannvirkjum, innan- og utnadyra, náttúruperlum og þjónustu. Frétt um opnunina

Handbókin Aðgengi fyrir alla er í endurskoðun og gert ráð fyrir að hún komi út bráðlega í endurbættri útgáfu.

UT-vefurinn gefur okkur góða innsýn í gott aðgengi á heimasíður.

Sjá ehf, gerir úttektir á aðgengi heimasíðna og stendur fyrir námskeiðum um gott aðgengi heimasíðna. Sjá hefur í samráði við ÖBÍ veitt heimasíðum aðgengisvottun.

Til umhugsunar:

Um stöðu aðgengismála á Íslandi skrifar Þórarinn Magnússon (2006): „Það er ljóst að bein fjárframlög opinberra aðila til að bæta aðgengi í eldra húsnæði eru lítil sem engin. Lyftustyrkir þekkjast ekki og nær engin dæmi munu vera um framlög til einstakra aðgerða innan íbúða. Hér þarf að verða breyting á og ef litið er til reynslu frænda okkar á Norðurlöndunum er nauðsynlegt að sem allra fyrst verði gripið til aðgerða til að flýta fyrir þróun mála.“

Hægt hefur þokast frá því Þórarinn skrifaði þessa lýsingu, en einhver vakning að verða.


Flýtival