Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf (Independent living). Hugmyndafræðin á rætur sínar að rekja til mannréttindabaráttu fatlaðs fólks á 8. áratug 20. aldar og felur í sér að:
- Allar manneskjur óháð, eðli og alvarleika skerðingar, geta tekið eigin ákvarðanir, stjórnað eigin aðstoð og mótað eigin lífsstíl
- Allar manneskjur hafa rétt á að búa í samfélaginu, stjórna eigin lífi og taka þátt á öllum sviðum þess
- Fatlað fólk ákveður og velur hvernig þjónustu það fær
- Valdið færist frá þjónustukerfinu til fatlaðs fólks.
NPA felst í að fatlað fólk ráði það aðstoðarfólk sem það kýs sjálft. Aðstoðarfólk vinnur samkvæmt starfslýsingu sem fatlað fólk semur og samræmist lífstíl og kröfum viðkomandi. Markmiðið er að fatlað fólk geti lifað lífi sínu, haft sömu möguleika og ófatlað fólk.
Sveitarfélög á Íslandi eru nú að hefja þróunarverkefni með NPA. Lög um þennan málflokk á svo að sníða fyrir lok árs 2014. Beingreiðslur verða veittar frá sveitarfélagi til fatlaðs fólks sem það getur ráðstafað sjálft og keypt þá aðstoð sem hentar því. Fatlað fólk getur með beingreiðslum keypt þjónustu frá þeim þjónustuaðilum sem það vill og þar með haft stjórn á eigin aðstoð.
Ráðstefna ÖBÍ og FFA um NPA 3. desember 2009. Þar má finna hlljóðskrár og glærur frá ráðstefnunni þar sem Adolf D. Ratzka, Ph.D. stofnandi og forstjóri Stofnunar um sjálfstætt líf í Svíþjóð hélt aðal fyrirlestur um hugmyndafræðina og starfið hjá þeim.
Vefsvæði um NPA hjá velferðarráðuneytinu
Velferðarráðuneyti hefur opnað vefsvæði um NPA þar má meðal annars finna eftirtalið efni:
- NPA ráðstefnu frá 10. febrúar 2012. hægt er að horfa á eða hlusta á öll erindin og skoða glærur frá fundinum.
- Handbók um NPA - verkefnastjórn um NPA hefur gefið út fyrstu útgáfu af handbók. Handbókinn er ætlað að gagnast sveitarfélögum, notendum, ríkisstofnunum og öðrum þjónustuaðilum við framkvæmd þróunarverkefnisins sem nokkurs konar rammi um fyrirkomulag þess.
- Samningsform fyrir sveitarfélög varðandi NPA
- Norrænt samstarf um NPA
Fréttir um NPA
- Kastljós 3. og 4. janúar 2012
- Ályktun Alþingis um NPA 8. júní 2010 -
- Umsögn ÖBÍ til nefndasvið alþingis um NPA 23. apríl 2010
- Áskorun frá ráðstefnu ÖBÍ og FFA um NPA 3. desember 2009
Reglur sveitarfélaga um NPA þjónustu
Reykjavík og Seltjarnarnes (samþ. 4. apríl 2013)
