Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur
Styrkjum úr Námssjóði Sigríðar Jónsdóttur, verður næst úthlutað í júní 2012. Auglýst verður í maí 2012 eftir umsóknum.
Umsóknareyðublað
ATH! umsóknarfrestur er til 21. maí 2012.
Fyrirspurnir má senda til Guðríðar Ólafsdóttur, í tölvupósti gudridur (@)obi.is eða hafa samband í síma 530-6700.
Stjórn sjóðsins skipa:
Hafliði Hjartarson
Björg S. Blöndal
Steinunn Þóra Árnadóttir
Starfsmaður sjóðsins er Guðríður Ólafsdóttir.
Skipulagsskrá námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur
Tilurð sjóðsins
Sigríður Jónsdóttir arfleiddi Öryrkjabandalag Íslands að íbúð sinni eftir sinn dag og skyldi þar af myndaður námssjóður fyrir öryrkja svo og þá sem menntuðu sig sérstaklega í þágu þroskaheftra. Andvirði íbúðarinnar varð 6.5 milljónir króna sem varð stofnfé sjóðsins. Samkvæmt lögum sjóðsins má ekki ganga á höfuðstólinn.
Árið 1999 gaf Sigurgeir Steinsson, sjóðunum tveim hjá ÖBÍ: Oddssjóði og Sigríðarsjóði húseign sína og kom í hlut Sigríðarsjóðs 4.5 milljónir króna.
Fyrsta úthlutun fór fram vorið 1995, 11. júní, á fæðingardegi Sigríðar Jónsdóttur. Hefur úthlutun æ síðan farið fram á afmælisdegi hennar eða sem næst þeim degi.
Í 2. tölublaði tímarits ÖBÍ 2004, er grein um Sigríðarsjóð.
