Þjálfun

Þjálfun - endurhæfing

Til að bæta lífsgæði sín eða ná bata þurfa margir á ýmisskonar þjálfun eða endurhæfingu að halda, sem miðar að því að ná aftur eins góðri líkamlegri, andlegri og félagslegri færni og unnt er.

Ef einstaklingur á lítinn rétt í sjúkrasjóði eða til slysabóta má sækja um endurhæfingarlífeyrir. Læknir eða læknar sjúklingsins eiga að aðstoða hann við að sækja um endurhæfingalífeyri tímanlega, áður en sjúkrasjóðsgreiðslur falla út. Læknirinn þarf að skila greinargóðu vottorði um veikindin með umsókn um endurhæfingarlífeyri til Tryggingastofnunar ríkisins.

Við útskrift af spítala á sjúklingurinn að hafa upplýsingar um áframhaldandi endurhæfingu hafi hann fengið aðstoð fagfólks í endurhæfingu á spítalanum t.d. sjúkra-, tal-, eða iðjuþjálfa. Framhaldsþjálfun fæst á göngudeild /stofu, heimasjúkraþjálfun eða iðjuþjálfun gegnum heilsugæsluna allt eftir aðstæðum og þörfum hvers og eins.

Landspítali háskólasjúkrahús - endurhæfingarsvið

Reykjalundur endurhæfingarsvið

Flokkarnir hér fyrir neðan veita ítarlegri upplýsingar um margskonar réttindi fólks hvað varðar hin ólíku hæfingarúrræði.


Náms- og starfsendurhæfing

Starfsvettvangur einstaklings hverfur eða breytist oft við veikindi/slys og leita þarf nýrra leiða í náms- eða starfsendurhæfingu


Sjúkraþjálfun

Til að fá endurgreiðslu á sjúkraþjálfun þarf sjúklingur að leita til læknis og fá beiðni fyrir sjúkraþjálfun. sem afhent er sjúkraþjálfara.


Iðjuþjálfun

Iðjuþjáflun er að hluta greidd niður ef beiðni frá lækni er afhent til iðjuþjálfans.


Talþjálfun

Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) niðurgreiða talþjálfun talmeinafræðinga í flestum tilfellum samkvæmt samningum.


Flýtival