Iðjuþjálfun
Í iðjuþjálfun felst sérþekking á daglegri iðju mannsins. Það er allt það sem fólk innir af hendi í daglegu lífi í þeim tilgangi að annast sig og sína. Niðurgreiðslur til iðjuþjálfunar fást í gegnum Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) og eru mismiklar eftir aldri og aðstöðu hvers og eins. (sjá tengla hér fyrir neðan á ítarlegri upplýsingar á vef SÍ)
- Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris
- Hærri styrkir fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá TR.
Sjúkratryggingar Íslands taka einnig þátt í kostnaði vegna iðjuþjálfunar sem fer fram hjá,
Hvert er starf Iðjuþjálfa?
Á heimasíðu Iðjuþjálfafélags Íslands segir meðal annars um iðju og iðjuþjálfun: „Iðja er öllum nauðsynleg og frá örófi alda hefur líf mannsins einkennst af þörf hans til að stunda iðju af margvíslegu tagi. Rannsóknir hafa sýnt að ef fólk kemst í þær aðstæður að geta ekki sinnt þeirri iðju sem því er mikilvæg, þá hefur það neikvæð áhrif á heilsu þess og líðan."
Þar segir einnig: „Í iðjuþjálfun felst sérþekking á daglegri iðju mannsins. Þá er átt við allt það sem fólk innir af hendi í daglegu lífi í þeim tilgangi að annast sig og sína, vinna ýmis störf er nýtast samfélaginu og njóta þess sem lífið hefur að bjóða. Sem dæmi um iðju má nefna það að klæða sig og snyrta, útbúa mat, aka bíl, afgreiða í verslun, skrifa ritgerð, fara á skíði eða mála mynd. Þótt þessi viðfangsefni virðist sjálfsögð og einföld fyrir flesta, þá geta þau verið erfið og jafnvel óyfirstíganleg fyrir margt fólk sem ekki hefur þroskast eðlilega, fengið sjúkdóma, er komið á efri ár eða hefur orðið fyrir áföllum af einhverju tagi."
