Náms- og starfsendurhæfing
Hér fara á eftir upplýsingar um fyrirtæki og stofnanir sem styðja einstaklinga sem orðið hafa fyrir áföllum og þurfa að byggja upp sjálfsmynd sína og möguleika til leiks og starfs um komandi ár með aukin lífsgæði að markmiði. Einnig eru tengingar inn á menntastofnanir sem margar hverjar bjóða í dag upp á fjarnám. Með fjarnámi hefur aðgangur fólks með fötlun að námi skánað mjög ef einstaklingurinn getur nýtt sér tölvur og sérstakan hjálparbúnað fyrir tölvur.
Vinnusamninga er í mörgum tilfella hægt að gera á milli TR og atvinnurekenda. Upplýsingar um fyrirbyggjandi aðferðir fyrir þá sem eru að falla út af vinnumarkaði má einnig finna neðst á síðunni.
Náms- og starfsendurhæfing, símenntun og verkþjálfun
Hringsjá náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Í boði eru einstök námskeið og þriggja anna nám, æ fleiri sem þaðan útskrifast halda í framhaldsnám.
Fjölmennt er miðstöð símenntunar sem þjónar fötluðu fólki, 20 ára og eldri. Stefna Fjölmenntar er að skapa fólki með fötlun möguleika til aukinnar þátttöku í lífi og starfi samfélagsins á við aðra þjóðfélagsþegna.
Janus endurhæfing veitir atvinnuendurhæfingu sem inniheldur ráðgjöf, fræðslu og þjálfun. Endurhæfing byggir á heildrænni sýn á heilbrigði sem er samspil og eðlileg þátttaka einstaklingsins í umhverfinu. Starfsemin nær til sértækra endurhæfingarúrræða til að freista þess að styðja einstaklinginn til daglegrar iðju og fyrirbyggja varanlega örorku.
Atvinnuleg endurhæfing á Reykjalundi höfuðmarkmið er að hjálpa fólki út á vinnumarkaðinn eftir veikindi og slys. Starfsemin er rekin á dagdeildarformi. Möguleiki er á dvöl á sjúkrahóteli fyrir þá sem eiga langt til síns heima.
Klúbburinn Geysir er fyrir einstaklinga sem eiga eða hafa átt við geðræn veikindi að stríða til að ná fótfestu í lífi og starfi. Þar er lögð áhersla á jákvæðni og horft á styrkleika hvers og eins, og m.a. byggt á þeirri vissu að bati vegna geðrænna veikinda feli í sér þátttöku í mikilvægu samfélagi.
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt og draga þannig úr hliðarverkunum sem sjúkdómurinn getur haft í för með sér.
Múlalundur Vinnustofa SÍBS þar á fólk með skerta starfsorku þess kost að vinna létt störf við hagnýtan iðnað þar sem vinnutími getur verið sveigjanlegur. Reynt er að hafa störfin frekar fjölbreytt, aðgengileg, ánægjuleg og þannig að starfsfólkið fái að njóta sín. Reynt er að byggja upp raunhæfara sjálfsmat og aukið sjálfstraust.
Hlutverk Samtök um vinnu og verkþjálfun hefur innan sinna vébanda 23 félög sem sinna fjölbreytilegri starfsþjálfun.
Geðheilsa-eftirfylgd og Hugarafl. Tilgangur þjónustunnar er að bjóða fólki með geðræn vandamál og aðstandendum þeirra eftirfylgd og ráðgjöf. Þjónustan er staðsett innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis og einnig ætluð til að efla aðstoð og valmöguleika innan heilsugæslunnar á geðsviði. Einstaklingar geta leitað til okkar á eigin forsendum eða með tilvísun.
Framhalds- og háskólar
Framhalds- og háskólar bjóða upp á fjölbreytilegt nám í dag og sumir skólanna bjóða sérstaka þjónustu við þá einstaklinga sem þurfa séraðstoð. Einnig bjóða flestir þeirra upp á fjarnám
í dag. Sumir háskólanna bjóða upp á skiptinám við erlenda háskóla.
Framhaldsnám
- Tengill inn á heimasíður allra framhaldsskóla á landinu.
- Símenntunar- og fræðslumiðstöðvar (allt landið sýnt með korti á heimasíðu Mennta- og menningarmálaráðuneytis)
- Iðan - vefur fyrir ungt fólk um íslenskan iðnað
Háskólanám
- Háskóli Íslands, góðar upplýsingar á heimasíðu Háskóla Íslands um nám við skólann og skiptinám erlendis.
- Háskólinn í Reykjavík
- Háskólinn á Akureyri
- Háskólinn í Bifröst
- Hólaskóli, Háskólinn á Hólum
- Landbúnaðarháskólinn
- Listaháskóli Íslands
Sérstakur tölvubúnaður
Tölvumiðstöð fatlaðra (TMF) - veitir ráðgjöf til einstaklinga og hópa varðandi tölvutengdan búnað sem nýtist fólki með mismunandi fatlanir. Ráðgjöf er veitt til skóla og stofnana og getur ýmist farið fram hjá TMF eða úti í hinum einstöku skólum eða stofnunum. Fræðsla, leiðsögn og samvinna kennara, foreldra og iðjuþjálfa tryggja að nemandi fái búnað við sitt hæfi.
Vinnusamningar öryrkja
Tryggingastofnun ríkisins hefur heimild til að semja við atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði um að ráða starfsfólk sem nýtur örorkulífeyris, örorkustyrks og endurhæfingarlífeyris. Miðað er við að einstaklingur hafi skerta starfsgetu og hafi ekki verulegar aðrar tekjur en greiðslur frá Tryggingastofnun.
VIRK starfsendurhæfingarsjóður.
Þjónusta VIRK er fyrir einstaklinga sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests og stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.
