Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun er í sumum tilfella næg þjálfun til að koma í veg fyrir að veikindi taki á sig verri mynd. Í öðrum tilfella er hún mikilvæg árum saman til að auka lífsgæði fólk og til að einstaklingur hafi möguleika á að halda sinni vinnu. Síðast en ekki síst úrslitavaldur fyrir einstaklinga til að ná bata að nýju eftir veikindi. Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta í kostnaði við sjúkraþjálfun. Mismikið þó eftir aðstöðu, aldri og fleira (sjá tengla á vef SÍ hér fyrir neðan).

Hvert er starf sjúkraþjálfa?

Á heimsíðu Félags íslenskra sjúkraþjálfara segir m.a.: „Sjúkraþjálfarar vinna í nánu samstarfi við lækna og aðrar heilbrigðisstéttir og meðhöndla sjúklinga í samráði við lækna. Ráðgjöf, forvarnir og heilsuefling er einnig mikilvægur þáttur í starfi sjúkraþjálfara vegna sérþekkingar þeirra á álagseinkennum og afleiðingum ýmissa sjúkdóma á stoðkerfi líkamans.“