Talþjálfun

Starf  talmeinafræðinga er greining á mál- og talmeinum ásamt meðferð. Einnig meta þeir þörf fyrir og veita þjálfun í óhefðbundnum tjáskiptaleiðum.

Rammasamningur gildir milli Sjúkratrygginga Íslands og margra talmeinafræðinga. Sjúkratryggingar greiða hluta kostnaðar talþjálfunar við fyrstu 25 skiptin og ef þörf er talin á viðbótarþjálfun út 365 daga tímabilið.

  • Styrkur er veittur frá Sjúkratryggingum ef þjónustunnar er leitað hjá talmeimnafræðingum án samnings við SÍ.
  • Gjaldskrá talþjálfunar (opnast á heimasíðu SÍ)

Hvert er starf talmeinafræðinga og talkennara

Á heimasíðu Félags talkennarar og talmeinafræðinga  Talkennarar og talmeinafræðingar starfa í leikskólum, skólum, á sjúkrahúsum, endurhæfingarstöðvum, greiningarstöðvum, hjá sveitarfélögum og á eigin stofum. Talkennarar og talmeinafræðingar vinna við greiningu á mál- og talmeinum ásamt meðferð og má þar nefna frávik í málþroska og framburði, stam, raddveilur, tjáningarerfiðleika eftir heilablóðfall og kyngingartregðu. Einnig meta þeir þörf fyrir og veita þjálfun í óhefðbundnum tjáskiptaleiðum. Ráðgjöf er mikilvægur þáttur í starfi talkennara og talmeinafræðinga.

Talmeinafræðingar vinna í nánu samstarfi við kennara, lækna og aðrar uppeldis-og heilbrigðisstéttir. Í byrjun meðferðar þarf yfirleitt tilvísun frá lækni. Skjólstæðingar eru á öllum aldri, allt frá ungabörnum til aldraðra.