Sjúklingatryggingar

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) annast sjúklingatryggingu fyrir heilsugæslustöðvar, sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir sem ríkið á í heild eða að hluta. Einnig mál er varða sjúkraflutninga og sjúklinga erlendis á vegum Sjúkratrygginga og "siglinganefndar".

Sjúklingar sem orðið hafa fyrir heilsutjóni í tengslum við meðferð eða rannsókn hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðismönnum þurfa að beina bótakröfum sínum til vátryggingafélags viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns.