Slysatryggingar og -bætur

Með slysi er átt við að skyndilegur utanaðkomandi atburður valdi meiðslum á líkama einstaklings sem tryggður er og gerist án vilja hans. Mikilvægt er að tilkynna um slys innan árs svo réttindi fyrnist ekki.

Tryggingarnar taka til slysa sem verða við:

  • vinnu
  • iðnnám
  • björgunarstörf
  • íþróttaæfingar,- sýningar og  -keppnir
  • slys við heimilisstörf
  • heilsutjón, örorku vegna læknisaðgerða eða mistaka heilbrigðisfólks

Hverjir eru slysatryggðir? (opnast á vef SÍ)

Slysabætur

Hvaða rétt á einstaklingur á greiðslu slysabóta?

  • sjúkrahjálp  (greiðsla læknishjálpar, sjúkrahúsdvalar, lyfja, tannviðgerða og sjúkraþjálfaunar vegna afleiðinga slyss)
  • slysadagpeningar  (ef slasaði er óvinnufær 10 daga eða meira, er greitt til þess slasaða eða vinnuveitenda)
  • örorkubætur  (ef varanleg mein verða og greiðslu sjúkradagpeninga er lokið)
  • dánarbætur  (ef slys veldur andláti innan 2 ára)