Afsláttarkort

Hér er sutt samantekt á afsláttarkortum sem standa fötluðum einstaklingum, öryrkjum og endurhæfingarlífeyrisþegum til boða. Þar sem síðan er í vinnslu væri gott að fá upplýsingar frá þeim sem þekkja til afsláttarkorta sem ekki koma fram hér. Sendið okkur upplýsingar á netfangið obi(@)obi.is

Afsláttarkort vegna heilbrigðisþjónustu

Lyfjaskírteini (lyfjakort) eingöngu rafræn frá 2012.

Sundkort í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, sér um útgáfu kortanna sem eru endurnýjuð árlega. Kortið kostar kr. 1.200 fyrir einstkaling og kr. 2.000 fyrir einstakling + aðstoðarman (árið 2012). Framvísa þarf örorku-/endurhæfingarlífeyrisskírteini, eða ummönnunarkorti ef um barn er að ræða. Sambýli og stofnanir geta sótt um skírteinin rafrænt fyrir heimilismenn með tölvupósti til annakristin(@)sjalfsbjorg.is

Skrifstofa Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12, 105 Reykjavík,  sími: 551-7868.


 


Flýtival