Einkaþjónusta afslættir

Bón og þvottastöðin, sími 588-1010, Grjóthálsi 10, 110 Reykjavík,

Bón og þvottastöðin veitir öryrkjum 20% afslátt á bílaþvotti, gegn framvísun örorkuskírteinis. Bón og þvottastöðin var í Sóltúni til fjölda ára, nú opnuð að Grjóthálsi 10. Stöðin er eina þvottastöð sinnar tegundar á Íslandi sem er algjörlega bursta og kústalaus. Allir bílar eru háþrýstiþvegnir, handþvegnir með sápu og tjöruhreinsi, bónaðir með bóni frá Sonax og loks þurrkaðir, allt á 6-7 mín. Þessi aðferð fer einkar vel með lakk bíla.  

Byggt og búið, sími 568-9400.

Veitir öryrkjum 10% afslátt af flestum vörutegundum en sumum þó eingöngu 5% afslátt, gegn framvísun örorkuskírteinis. Ekki er veittur aflsáttur á útsölu- og tilboðsvörum. Upplýsingar um hvaða vörur það eru er á lista í verslununum.

Cubic Bifreiðaverkstæði ehf.  sími 587-5500, Stapahrauni 12, 220 Hafnarfirði, http://www.cubic.is/

Cubic Bifreiðaverkstæði ehf býður öryrkjum upp á 15% afslátt af útseldri verkstæðis vinnu gegn framvísun örorkuskýrteinis.Gyldir einnig til forráðamanna barna sem eru á örorku. Einnig verður viðkomandi að vera skráður eigandi bifreiðar eða þess tækis sem við á.

 Verkstæðið er með allar almennar viðgerðir á bílum, fjórhjólum og mótorhjólum. Boðið er  upp á föst verð í ýmsar viðgerðir t.d., tímareimaskipti, kúplingsskipti, bremsuviðgerðir, spindla og stýrisenda skipti ofl.

Next í Kringlunni,  sími  551-3200

Veitir öryrkjum 15% afslátt, af öllum vörum nema á útsölu- og tilboðsvörum. ATH! framvísa þarf örorkuskírteini. 

Fosshótel, sími 562 4000.

Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands, gildir frá 1. maí 2011 til 20. apríl 2012. Allir sem geta framvísað örorkuskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins geta nýtt sér þau kjör er samningurinn kveður á um. Boðið er upp á gistingu á öllum hótelum keðjunnar að sumri til.   

Bókanir: allar bókanir fyrir öll Fosshótel skulu berast til söluskrifstofu Fosshótela (Sími: 562 4000/ Fax: 562 4001/ netfang: marketing@fosshotel.is )

Afpöntunarreglur: Einstaklingar geta afbókað í síðasta lagi 2 sólarhringum fyrir komu án þess að greiða fyrir herbergið. Ef afbókað er seinna greiðist 100% afbókunargjald.
Afbókunarfyrirvari vegna hópa er 30 dagar, ef hópurinn er afbókaður 0-30 dögum fyrir komu greiðist 100% afbókunargjald.

Verð miðast við staðgreiðslu. Ef reikningur skal sendur til greiðslu skal semja um það fyrirfram.

Verð fyrir eins- og tveggjamanna herbergi með baði og morgunverði.

  • 1. júní 2011 til 31. ágúst 2011, krónur 12.000 á nóttina og einnig er veitur 15% afsláttur á mat og óáfengum drykkjum.
  • 1. september 2011-31. maí 2012 kr. 9.000 á nóttina.
 Nafn hótels
Heilsárs hótel
 Aðgengi *
 Fosshótel Lind, Reykjavík  já með fyrivara
 Fosshótel Baron, Reykjavík  já  já
 Fosshótel Reykholt, Borgarfirði  já  já
 Fosshótel Dalvík skert starfsemi vetrartímann  með fyrivara
 Fosshótel Húsavík skert starfsemi vetrartímann  já
  Fosshótel Skaftafell skert starfsemi vetrartímann   með fyrivara
 Fosshótel Vatnajökull, Höfn Hornf. nei, bara 15.maí til 25.sept.   með fyrivara
 Fosshótel Laugar, Reykjadal, N-Þ. nei, bara 1. júní til 19. ágúst   með fyrivara
 Fosshótel Mosfell, Hellu nei, bara 1. júní til 31. ágúst   með fyrivara

* Úttekt á aðgengi hefur ekki verið gerð og því er þessi fyrirvari settur. Unnið er að úttekt á hótelunum með tilliti til aðgengis fyrir alla.

Sjávarhöllin, Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík, s.775-6566 

býður örorku- og ellilífeyrisþegum á höfuðborgarsvæðinu 10% afslátt af öllum fiski og fría heimsendingu á þriðjudögum og föstudögum ef verslað er fyrir 2.500 krónur eða meira. Panta þarf fyrir kl. 15.00 á dagin í síma 775-6566 eða á netfangið sjavarhöllin (@)simnet.is (ATH! að sleppa út svigamerki sem er sett inn vegna netöryggis)

Vodafone, Skútuvogi 2,  s. 599 9000

Örorku- og ellilífeyrisþegar fá afslátt af heimasíma, óháð þjónustuleið.