Afslættir hjá ríki og sveitarfélögum

Ríkisstofnanir

Ríkisskattstjóri (RSK)

Tenglar inn á heimasíðu ríkisskattstjóra (skammstafað RSK).

Háskóli Íslands

afsláttur til örorkulífeyrisþega af skrásetningargjaldi gegn framvísun örorkuskírteinis á Þjónustuborðið Háskólatorgs.

ATH!  Allir reikningar fyrir skrásetningargjaldi eru þó gefnir út á fullt gjald en síðan lækkaðir eftir á samkvæmt staðfestingu með örorkuskírteininu.

Sveitarfélög

  • Fasteignagjöld í sumum sveitarfélögum er veittur afsláttur af fasteignagjöldum til örorku- og ellilífeyrisþega. Afslættirinr eru þó mismiklir eftir sveitarfélögum, sem setja sjálf reglur um fjárhæð afsláttar og tekjumörk umsækjenda. Tenglar beint á afsláttarreglur um fasteiganagjöld eftirtlinna sveitarfélaga:  Reykjavík  - Garðabær - Seltjarnarnesbær
  • Félagsþjónusta sveitarfélaga, í kafla XI í  lögum 40/1991 um segir  „Jafnframt skulu fötluðum sköpuð skilyrði til að lifa sem eðlilegustu lífi miðað við getu hvers og eins."  Velferðarráðuneytið fer með yfirumsjón málaflokksins.
  • Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, en þeim ber að setja sér reglur um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Langflest sveitarfélaganna hafa sett sér þessar reglur. Hafa þarf þó í huga að stuðningur er mismikill og í mismunandi formi hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Upplýsingar frá flestum sveitarfélögum um fjárhagsaðstoð má finna á heimasíðu velferðarráðuneytisins.
  • Greiðsluerfiðleikar
  • Strætó.is góður afsláttur til öryrkja af 20 miða korti. Framvísa þarf örorkuskírteini frá TR í miðaafgreiðslum Strætó.
  • Sundkort í sundlaugar Reykjavíkur. Öryrkjar eru ekki gjaldskyldir gegn framvísun skírteinis Tryggingastofnunar ríkisins “grænt skírteini” vegna varanlegrar örorku og skírteinis Blindrafélags “blátt skírteini”.
  • Aðrir öryrkjar eru ekki gjaldskyldir gegn framvísun skírteinis sem gefið er út af Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra í Reykjavík, það skal endurnýjað árlega. Kortið kostar kr. 1.200 fyrir einstakling og kr. 2.000 fyrir einstakling + aðstoðarmann. Framvísa þarf örorku-/endurhæfingarlífeyrisskírteini, eða ummönnunarkorti ef um barn er að ræða. Sambýli og stofnanir geta sótt um skírteinin rafrænt fyrir heimilismenn með tölvupósti til annakristin(@)sjalfsbjorg.is
    Skrifstofa Sjálfsbjörg, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu er að Hátúni 12, 105 Reykjavík, 551-7868.