Hjálpartæki
Til vinstri á þessari síðu má finna undirflokka sem veita nánari upplýsingar um hjálparbúnað fyrir ólíka fötlunarflokka. Upplýsingar um kaup og leigu hjálpartækja og einnig lög og relgugerðir um málaflokkinn.
Samkvæmt lögum um almannatryggingar annast Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) afgreiðslu á hjálpartækjum samkvæmt ákveðnum reglum og sér um endurnýtingu tækjanna. Hjálpartækjamiðstöð sér um þessa afgreiðslu ásamt því að veita ráðgjöf við val hjálpartækja. Það skal gert á þann hátt að gætt sé hagsmuna viðskiptavina, starfsmanna og ríkisins.
Hjálpartækjamiðstöð
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík, Sími: 515 0100. Afgreiðslutími frá 8.30 - 15.30 virka daga.
Símatími iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara í einingu tæknilegra hjálpartækja er frá kl. 10.00 -12.00 alla virka daga og á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 13.00 - 14.00.
Þjónusta hjálpartækjamiðstöðvar á Kristnesi Eyjafirði, gefur tækifæri á að sýna og gefa notendum á svæðinu færi á að prófa ýmis hjálpartæki.
Símatími iðjuþjálfa er mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 12.30-14.00 í síma 463 0399 eða um tölvupóst á netfangið hjalpartaeki(hja)fsa.is.
Vinsamlega athugið að við kaup á hjálpartæki skal ávallt liggja fyrir heimild frá Sjúkratryggingum Íslands ef krafist er endurgreiðslu frá stofnuninni.
Ef smellt er á spurningar hér fyrir neðan opnast upplýsingar og svör þar um á ítarefni á heimasíðu SÍ.
- Hvernig á að sækja um hjálpartæki?
- Hvaða tæki eru niðurgreidd?
- Hvaða fyrirtæki eru með samning við SÍ um hjálpartæki?
- Listi yfir vörur, búnað og samningar
- Upplýsingar um hjálpartæki í bílum, á sambýlum / heilbriðisstofnunum / dvalarheimilum og notkun í skólum.
Leiðbeinandi upplýsingar um hjálpartæki:
Sjá nánar í reglugerð 1138/2008 og reglugerð 1041/2010 breytingar á reglugerð 1138/2008.
Hér fyrir neðan eru nöfn fyrirtækja sem bjóða upp á sérbúnað fyrir fatlaða meðal annars, ef smellt er nafn fyritækisins opnast inni á heimasíðu þess fyrirtækis. Hfa ber í huga að fyrirtækin eru ekki í öllum tilfellum með samning við Sjúkratryggingar Íslands og væntanlega er kkki er um tæmandi lista að ræða. Þekkir þú fyrirtæki sem ekki er á þessum lista en býður upp á hjálpartæki/-búnað, endilega láttur okkur þá vita á netfangið, obi (hjá) obi.is
- Fastus
- Eirberg
- Inter ehf
- Stoð
- Stoðtækni ehf
- Svefn og heilsa ehf
- Össur hf
- Örtækni (tölvubún fyrir blinda)
