Blindir, sjónskerti og daufblindir

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga veitir ítarlegar og góðar upplýsingar á sinni heimasíðu um hjálpartæki og ýmsa aðra þjónustu og fróðleik sem gagnast þeirra fólki.

  • Hjálpartæki listi yfir hjálpartæki sem Miðstöðin úthlutar til notenda sinna í samræmi við reglugerð 233/2010 þar um.
  • Gerviaugu hjá Miðstöðinni fer fram smíði og úthlutun gerviaugna.
  • Endurgreiðsla gleraugna - skilyrði fyrir endurgreiðslu er vottorð frá lækni eða sjóntækjafræðingi. ATH! ekki er greitt  fyrir gleraugnaumgjörð.
  • Leiðsöguhundar - rétt eins og hvíti stafurinn er leiðsöguhundur skilgreindur sem hjálpartæki í umferli.
  • Tölvur og tækni - miðstöðin annast meðal annars úthlutun á  tölvutengdum hjálpartækjum sem blindir, sjónskertir og daufblindir einstaklingar geta nýtt sér til daglegra verka, starfs, náms og afþreyingar.  Bæði er um vélbúnað og hugbúnað að ræða, sem bætast þá við tölvu eða önnur almenn heimilistæki sem fyrir eru.