Heyrnarlausir og heyrnarskertir hjálparbúnaður
Í 1. gr. reglugerð 146/2007 um styrkir til kaupa á heyrnartækjum segir meðal annars að allir sem hafa tónmeðalgildi á betra eyranu >30 dB <70 dB við tíðnina 0,5, 1,0, 2,0 og 4,0 kHz eiga rétt á styrk til kaupa á heyrnartækjum samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Umsækjandi þarf að vera orðin 18 ára og vera sjúkratryggður á Íslandi.
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) greiða styrki vegna kaupa á heyrnartækjum. Styrkur er veittur á fjögurra ára fresti.
Hvernig er sótt um styrk vegna heyrnartækis?
Til að sækja um styrk hjá SÍ er ekki útfyllt sérstakt eyðublað, heldur skilar umsækjandi inn frumriti reiknings, heyrnarmælingu og upplýsingum um bankareikning.
- Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) - miðstöð þekkingar í heyrnar- og talmeinum á Íslandi. Þjónar þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með talmein.
Seljendur heyrnartækja verða að hafa rekstrarleyfi frá heilbrigðisráðuneyti. Rekstrarleyfishafar eru fyrirtækin:
