Hreyfihamlaðir

Sjúkdómar líkt og gigt, helftarlömun, vöðvarýrnun, slys og öldrun geta valdi ýmisskonar hreyfiskerðingu í höndum, fótum eða búk.

Handarskertir 

- hafa til dæmis lítinn mátt í fingrum, skorirt fínhreyfinga, hafa lítinn vöðvastyrk og stífan úlnlið.

Búnaður fyrir fólk með handaskerðingu er til dæmis:

  • tæki sem aðlöguð eru að litlum vöðvastyrk og stífum úlnlið
  • réttum stærðum áhalda, handfanga, staðsetningu hnappa o.fl.

Gönguskertir

- eiga við jafnvægisleysi að stríða, göngugeta er mjög takmörkuð til dæmis við að fara upp tröppur, í halla, yfir ójöfn svæði og lengri vegalengdir.

Aðgengi fyrir fólk með gönguskerðingu er til dæmis:

  • fáar tröppur og ávallt með handlistum
  • hvíldarstaði á gönguleiðum
  • jafnt undirlag án hæðarmunar
  • bílastæði nálægt aðalinngangi

Notendur hjólastóla

Gönguskertir geta oft átt við það mikla hreyfihömlun að stríða að þeir þurfi hjólastóla til skemmri eða lengri ferða. Margir eru því miður bundnir hjólastól að öllu leiti vegna sinnar lömunar.

Hjólastólar eru annaðhvort handknúnir eða rafdrifnir. Rafmagnshjólastólar eru þyngri en handknúnir og þurfa meira rými. Mikilvægt er að hafa í huga að hjá hjólastólanotendum er seilingarfjarlægð styttri og augnhæð
lægri en hjá öðrum.

Hjólastólanotendur hafa þörf fyrir:

  • bílastæði nálægt aðalinngangi
  • jafnt og þétt undirlag án hæðarmunar
  • lítinn halla á skábrautum
  • breiðar dyr sem auðvelt er að opna
  • breiða ganga og snúningsstaði
  • innréttingar og búnað í réttri hæð miðað við notkun
  • lyftur til að komast á milli hæða
  • snyrtingar við hæfi

Upplýsingar sem hér er stuðst við varðandi búnað má finna á heimasíðunni Gott aðgengi