Kaup á hjálpartækjum
Hjálpartæki fást einnig hjá einkafyrirtækjum en ekki er víst að í öllum tilfellum sé samningur til um niðurgreiðslu á milli Sjúkratrygginga Íslands og þess fyrirtækis. Niðurgreiðsla er því lægri eða engin af þeim tækjum og búnaði. Mikilvægt er að kanna þessi mál vel áður en búnaður er valinn því alltaf þarf að liggja fyrir heimild Tryggingarstofnunar ef óskað er eftir greiðsluþáttöku.
Hér fyrir neðan eru nöfn fyrirtækja sem bjóða upp á sérbúnað fyrir fatlaða, ef smellt er á nafn fyritækisins opnast inni á heimasíðu þess fyrirtækis. Breytingar geta orði á þessum lista, því skal taka honum með fyrirvara. Vinasamlega látið vita ef þið rekist á villur, á tölvupóstfangið obi(@)obi.is
