Húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur
Húsaleigubætur
Sveitarfélögum er skylt, skv. lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997, að greiða húsaleigubætur og eru þær greiddar tekjulágum leigjendum til að lækka húsnæðiskostnað þeirra. Bæturnar eru tekjutengdar og tengdar fjölskyldustærð. Upphæðir sem greiddar eru geta því verið mjög misháar. Sveitarfélög annast afgreiðslu og útborgun húsaleigubóta.
Hægt er að kanna stöðu sína í Reikinvél fyrir húsaleigubætur á vef Velferðarráðuneytisins.
Sérstakar húsaleigubætur
Samkvæmt lögum um húsaleigubætur getur sveitarstjórn tekið ákvörðun um að greiða hærri húsaleigubætur. Um er að ræða húsaleigubætur sem eru viðbót við grunnfjárhæðir húsaleigubóta.Sérstakar húsaleigubætur eru ætlaðar leigjendum sem búa við mjög erfiðar félagslegar og fjárhagslegar aðstæður.
Í flestum sveitarfélögum er sett skilyrði fyrir veitingu sérstakra húsaleigubóta svo sem að umsækjandi eigi við sérstakan félagslegan vanda að etja auk skilyrða um ákveðin tekju- og eignamörk og upphæð leigu.
Sérstöku húsaleigubætur geta að meðtöldum almennum húsaleigubótum orðið að hámarki 70.000 kr. á mánuði. (árið 2010) Sum sveitarfélög hafa sett sér reglur um sérstakar húsaleigubætur. Af 76 sveitarfélögum greiða 20 þeirra sérstakar húsaleigubætur samkvæmt upplýsingum úr skýrslu húsnæðisnefndar ÖBÍ, desember 2010.
Sveitarfélög sem greiða sérstakar húsaleigubætur fjárhagsárið 2010 voru, raðað í stafrófsröð:
| Sveitarfélag |
Sveitarfélag | Sveitarfélag |
|---|---|---|
| Akranes | Garður sveitarfélag | Reykjanesbær |
| Akureyri |
Grindavík | Reykjavík |
| Álftanes | Hafnarfjörður | Sandgerðisbær |
| Árborg sveitarfélag | Hveragerðisbær | Svalbarðsstrandarhreppur |
| Borgarbyggð | Ísafjarðarbær | Vogar sveitarfélag |
| Fjarðabyggð |
Kópavogur | Þingeyjarsveit |
| Fljótsdalshérað | Mosfellsbær | |
