Sveitarfélög
Sveitarstjórn ber ábyrgð á og hefur frumkvæði að því að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun, samkvæmt 5. gr. laga nr. 44/1998 um húsnæðismál, og skal sveitarstjórn fylgjast með þörf á húsnæði í sveitarfélaginu.
Félagsbústaðir hf. er hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar sem á og rekur félagslegar leiguíbúðir fyrir einstaklinga og fjölskyldur undir skilgreindum tekju- og eignatakmörkunum. Umsóknir skulu berast Félagsþjónustunni í Reykjavík, en umsóknareyðublöð fást hjá félagsráðgjöfum á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar, ásamt upplýsingar um fylgigögn, undanþágur o.fl.
Til að kanna stöðuna hjá þínu sveitarfélagi getur þú smellt á nafn þess hér fyrir neðan og þá kemstu beint inn á húsnæðismál.
Akureyri - Akranes - Austur-Hún - Árborg (Eyrabakki, Selfoss, Stokkseyri) - Borgarbyggð (Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur og Kolbeinsstaðahreppur) - Dalvík - Fjarðabyggð (Fáskrúðsfjörður, Eskifjörður, Mjóifjörður, Neskaupstaður, Reyðarfjörður, Stöðvarfjörður) - Fljótsdalshérað (Egilstaðir og nágrenni) - Garðabær - Grindavík - Hafnarfjörður - Höfn Hornafirði - Ísafjarðarbær (Flateyri, Ísafjörður, Suðureyri, Þingeyri) - Kópavogur - Mosfellsbær - Norðurþing - Rangárþing eystra - Rangárþing ytra (vestra) - Reykjanesbær - Sandgerði/Garður - Seltjarnarnes - Seyðisfjörður - Skagafjörður (Sauðárkrókur og nágrannasveitir) - Vestmannaeyjar - Vopnafjarðarhreppur - Ölfus
Heimasíður allra sveitarfélaga á landinu (tengill inn á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar flokkuðu eftir landssvæðum).
Húsaleigubætur
Húsaleigubætur koma til lækkunar á leigu og eiga margir í íbúðarhúsnæði rétt á slíkum bótum. Athugið að bæturnar eru tekjutengdar og tengdar fjölskyldustærð og geta því verið mjög misháar eftir aðstæðum hvers og eins.
- Reiknivél fyrir húsaleigubætur.
- Sérstakar húsaleigubætur.
- Almennar upplýsingar Velferðarráðuneytisins um húsaleigubætur.
