Ýmiss félagasamtök
Nokkur félagasamtök eiga leiguhúsnæði, sambýli, áfangaheimili til úthlutunar. Ekki er víst að um tæmandi lista sé að ræða. Þeir sem þekkja til annars húsnæðis vinsamlega sendið upplýsingar á veffangið obi(hjá)obi.is
Samkvæmt upplýsingum fengnum úr skýrslu Húsnæðisnefndar ÖBÍ (desember 2010) eiga eftirtalin félagasamtök húsnæði sem sérstaklega er ætlað fyrir fatlaða einstaklinga. Vinsamlega hafið í huga að dálkurinn fjöldi og tegund húsnæðis tekur ört breytingum má því vera að sé ekki alveg réttur.
Húsnæði á vegum aðildarfélaga ÖBÍ
| Rekstraraðili (aðildarfélag ÖBÍ) |
Markhópur fyrir úthlutun húsnæðis |
Fjöldi/teg. úrræða |
Réttur bundinn tekju-/ eignamörkum |
|---|---|---|---|
| Ás styrktarfélag | fólk með þroskahömlun | 9 sambýli | nei |
| Blindrafélagið |
blindir og sjónskertir (félagsmenn hafa forgang) |
20 leiguíbúðir 2 gestaíbúðir 1 einbýlishús- (sambýli) |
já |
| Geðverndarfélag Íslands (ekki með heimasíðu) |
fólk með geðfötlun | 2 vernduð heimili 1 áfangaheimili |
nei |
| Húsnæðisfélag SEM | félagsmenn SEM-samt. | 31 leiguíbúð |
nei |
| Sjálfsbjörg lsf. | hreyfihamlaðir | 36 leiguíbúðir | já |
|
|
Húsnæði á vegum annarra samtaka
| Rekstraraðili (aðrir) | Markhópur fyrir úthlutun húsnæðis | Fjöldi/teg. úrræða |
Réttur bundinn tekju-/ eignamörkum |
|---|---|---|---|
| Landssamtökin Þroskahjálp | skv. lögum um málefni fatlaðra |
63 íbúðir 5 herbergi 2 sambýli |
ekki vitað |
| Skálatúnsheimilið | fólk með þroskahömlun | 10 leiguíbúðir 6 sambýli 28 herbergi |
nei |
| Sólheimar | fullorðnir einstaklingar með þroskahömlun |
22 leiguíbúðir 4 sambýli |
nei |
