Húsnæðismál

Húsnæðismál

Allir þurfa þak yfir höfuðið. Margir lenda í húsnæðisvandræðum við langvinn veikindi og missa í verstu tilfellum frá sér húseignir. Aðrir þurfa aðgengilegra húsnæði.

Ýmsir valkostir eru á húsnæði fyrir fatlað þó mikið vanti á að þeirri þörf sé að fullu sinnt. Hér fer á eftir samantekt yfir þá aðila sem bjóða leiguhúsnæði á hagstæðara verð,i og er tryggara húsnæði til langframa ef öllum reglum er fylgt, en það sem býðst á hinum almenna markaði. Í mörgum tilfella er horft til sérþarfa hreyfihamlaðra um aðgengi.

BRYNJA-Hússjóður ÖBÍ hefur um 640 íbúðir til útleigu. Íbúðirnar eru eingöngu ætlaðar öryrkjum.

Sjálfsbjörg býður 36, eins- og tveggja- herbergja, íbúðir sem eru hannaðar með hliðsjón af þörfum hreyfihamlaðra. Umsækjendur skulu að jafnaði vera 18 - 60 ára og vera sjálfbjarga um flestar athafnir daglegs lífs. Hreyfihömlun einhverskonar er skilyrði fyrir úthlutun.

Húsnæðisfélag SEM er sjálfseignarstofnun sem rekur félagslegt íbúðarhúsnæði sem tekur tillit til sérþarfa hreyfihamlaðra. Húsnæðið er eingöngu handa félögum SEM-samtakanna.

Félagsbústaðir hf. er hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar sem á og rekur félagslegar leiguíbúðir fyrir einstaklinga og fjölskyldur undir skilgreindum tekju- og eignatakmörkunum. Umsóknir skulu berast Félagsþjónustunni í Reykjavík, en umsóknareyðublöð fást hjá félagsráðgjöfum á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar , ásamt upplýsingar um fylgigögn, undanþágur o.fl.

Flest stærri sveitarfélög landsins bjóða upp á húsnæði á hagstæðum kjörum. Til að kanna stöðuna hjá þínu sveitarfélagi getur þú smellt á nafn þess hér fyrir neðan og þá kemstu beint inn á húsnæðismál.

Akureyri - Akranes -  Árborg (Eyrabakki, Selfoss, Stokkseyri) -  Fljótsdalshérað (Egilstaðir og nágrenni) -   Fjarðabyggð (Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður, Neskaupstaður, Reyðarfjörður, Stöðvarfjörður) -  Garðabær  - Hafnarfjörður  -  Höfn Hornafirði  -  Ísafjörður   - Kópavogur   -   Mosfellsbær   -   Reykjanesbær - Skagafjörður  (Sauðárkrókur og nágrannasveitir) -   Seltjarnarnes   -   Stykkishólmur

Tengill á öll sveitarfélög á landinu (inn á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, þar flokkuðu eftir landssvæðum).

Húsaleigubætur

Húsaleigubætur koma til lækkunar á leigu og eiga allir þeir sem eru með þinglýstan húsaleigusamning rétt á slíkum bótum. Bæturnar eru tekjutengdar og tengdar fjölskyldustærð. Upphæðir sem greiddar eru geta því verið mjög misháar. Tengill á:

Reiknivél fyrir húsaleigubætur. 

Almennar upplýsingar Félagsmálaráðuneytisins um húsaleigubætur

Kaupleiguíbúðir

Kaupleiguíbúðir er valkostur sem gagnast sumum. Auk mánaðarlegrar leigu þarf oftast að greiða ákveðið grunngjald í upphafi búsetu. Tenglar á heimasíður:

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.