Lífeyrissjóðir - réttur til örorkulífeyris

Öllum launþegum ber skylda að greiða í lífeyrissjóð af sínum launatekjum. Við orkutap getur myndast réttur til að sækja um örorkulífeyri hjá þeim lífeyrissjóði eða -sjóðum sem greitt hefur verið til. Sjóðfélagi á rétt á örorkulífeyri ef hann;

  • verður fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira,
  • hefur greitt í lífeyrissjóð í a.m.k. tvö ár
  • hefur orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutapsins.

Örorkulífeyri skal framreikna samkvæmt reglum sem nánar er kveðið á um í samþykktum hvers lífeyrissjóðs, enda hafi sjóðfélagi greitt til lífeyrissjóðs í a.m.k. þrjú ár á undanfarandi fjórum árum, samanber 15. grein laga nr. 129/1997.

Í samþykktum lífeyrissjóða skulu sett frekari ákvæði um örorkulífeyri, svo sem um örorkumat, fjárhæð örorkulífeyris, útreikning og skilyrði fyrir greiðslu hans. Raminn sem lífeyrissjóðirnir þurfa að hlíta er skilgreindur í 29. grein laga nr. 129/1997.

ATH! Samþykktir geta verið mismunandi eftir sjóðum, því er mikilvægt að kynna sér vel reglur þess sjóðs eða þeirra sjóða sem greitt hefur verið í um ævina.

Átta ára regla

Í samþykktum flestra lífeyrissjóða er einnig ákvæði um að ef lífeyrisþegi getur sýnt fram á með rökum (gögn í formi skattaframtals) að tekjur þær sem greitt var iðgjald af síðustu 4 ár fyrir töku lífeyris gefa ekki rétta mynd af rauntekjum fyrri ára, vegna ýmissa ástæðna. Þá má reikna viðmiðunartekjur út frá 8 árum, tekjuhæst og tekjulægsta árið er fellt út og meðaltal fundið af þeim 6 árum sem eftir standa. Skoða þarf samþykkt hvers sjóðs þar sem fjallað er um örorkulífeyri.

Vert er að hafa í huga að brúttógreiðsla (fyrir skatta) sem fæst frá lífeyrissjóði/-sjóðum skerðir alla bótaflokka almannatrygginga.

Tenglar á alla stærstu lífeyrissjóðina. (opnast í nýjum glugga á heimasíðu Landssambands lífeyrissjóða)

Margir smærri lífeyrissjóðir hafa nú verið sameinaðir öðrum og hafa skipt um nafn. Leita má til Landssambands lífeyrissjóða , sími 563-6450, til að finna út hvaða sjóði fyrrum sjóður hefur sameinast.


Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica