Lögfræðiráðgjöf
Lögfræðiráðgjöf er veitt öryrkjum að kostnaðarlausu annanhvern mánudaga frá kl. 9.00-13.00 á skrifstofu ÖBÍ að Hátúni 10. Panta þarf tíma með góðum fyrirvara í síma 530-6700. Eingöngu er um ráðgjöf að ræða aðilum að kostnaðarlausu.
Lögfræðingur er Sigurjón Sveinsson
Mál lögfræðiráðgjafar eru flóknari lagalega en þau sem veitt er aðstoð með hjá félagsráðgjafa. Þau tengjast oft skiptum á búi við skilnað, forræði yfir börnum, erfðamálum sem og réttindamálum tengdum TR og lífeyrissjóðum svo dæmi séu nefnd sem og annarri stjórnsýslu sem einstaklingurinn telur að brotið hafi á sér.
Ef um flókin mál, lögfræðilegs eðlis er að ræða, sem einföld lögfræðiráðgjöf ÖBÍ getur ekki tekið á, er málum vísað frá og aðilum bent á að leita aðstoðar Lögmannfélags Íslands til að fá upplýsingar um hvaða lögfræðingar séu sérfræðingar í viðkomandi málaflokki. Í einstöku tilfella er leitað gjafsóknar í málum einstaklinga.
Í ársskýrslum ÖBÍ má lesa skýrslu lögfræðiráðgjafar um starf liðinna ára.
