Túlkaþjónusta

Táknmálstúlkun

Túlkun er samvinna heyrnarlausra, heyrandi og túlks. Táknmálstúlkurinn undirbýr sig fyrir verkefni t.d. með því að lesa glærur, fyrirlestra og annað það efni sem til er varðandi það sem hann er að fara að túlka.

Táknmálstúlkar eru pantaðir/bókaðir hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, í síma 562-7738 eða á  tölvupóstafangið, fanney(@)shh.is. Túlkarnir sérhæfa sig á vissum sviðum. Á fimmtudögum fá túlkarnir afhenda stundatöflu fyrir næstu viku, því er mikilvægt að túlkur sé pantaður með viku fyrirvara þegar hægt er.

Einnig samskipti með sms-skilaboðum og neyðarboð með SMS til 112

Rittúlkun

Rittúlkun gagnast heyrnarskertum vel...

Túlkun fyrir daufblinda

Daufblindum

er skipt í tvo aðalhópa, daufblindfædda og síðdaufblinda. Daufblindfæddir eru þeir sem eru daufblindir frá fæðingu eða verða daufblindir á fyrstu stigum máltöku, þ.e.a.s. fyrir 18 mánaða aldur. Þeir sem verða daufblindir eftir máltökuskeið eru jafnan kallaðir síðdaufblindir. Samskipti síðdaufblindra eiga annaðhvort grunn í raddmáli eða táknmáli sem hefur lærst áður en daufblindan nær yfirhöndinni. Samskiptaleiðirnar verða að aðlagast eða breytast í samræmi við sjón- eða heyrnarskaðann.

Möguleikar daufblindfæddra til samskipta ráðast af því hvort þau hafa haft aðgang að sérhæfðu starfsfólki ásamt markvissu kennsluferli í bernsku. Ef viðkomandi talar táknmál þarf að minnka táknsviðið. Láttu hönd þess daufblinda hvíla á handleggnum til að auðvelda að fylgja hreyfingunni. Settu hendur á hendur til að miðla snertitáknmáli.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica