Daufblindrafélag Íslands
Daufblindrafélag Íslands var stofnað 15. mars 1994. Markmið þess er að vinna að hvers kyns réttinda- og hagsmunamálum daufblindra á Íslandi. Daufblinda er mikil og alvarleg fötlun. Þeir sem búa bæði við alvarlega sjón- og heyrnarskerðingu eru vissulega einangraður hópur í þjóðfélaginu. Daufblindrafélag Íslands vinnur að því að rjúfa einangrun skjólstæðinga sinna. Félagið starfar á landsvísu og allir daufblindir á Íslandi eiga rétt á ráðgjöf og þjónustu frá daufblindraráðgjafa.
Helstu samskiptaleiðir daufblindra eru tal, táknmál, snertitáknmál sem byggir á því að halda í hönd þess sem talar og skynja táknin á þann hátt, blindraletur og fingrastafróf.
Helsta hlutverk félagsins er m.a. að:
- Vera upplýsingamiðstöð í málefnum daufblindra.
- Kynna daufblindu t.d. í skólum og á vinnustöðum, ekki síst þar sem daufblindir einstaklingar dvelja, s.s. á sambýlum.
- Styðja nemendur sem eru að kynna sér og læra um daufblindu.
- Styðja starfsfólk sem vinnur með daufblindum og hjálpa því að finna lausnir á ýmsum vanda sem upp kann að koma.
- Leita að daufblindum einstaklingum sem ekki eru að fá þjónustu við sitt hæfi.
- Vinna að bættri þjónustu við eldra fólk sem orðið er alvarlega sjón- og heyrnarskert.
- Taka þátt í þróun á þjónustu við daufblinda t.d. varðandi menntun og endurhæfingu með það fyrir augum að gefa þeim aukin lífsgæði.
