FAAS - félag aðstandenda Alzheimersjúklinga
FAAS-félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra minnissjúkra var stofnað árið 1985. Markmið félagsins er m.a. að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna, efla samvinnu og samheldni aðstandenda m.a. með fræðslufundum og útgáfustarfsemi og auka skilning stjórnvalda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim vandamálum sem þessir einstaklingar og aðstandendur þeirra eiga við að etja.
Félagið rekur þrjár sérhæfðar dagþjálfanir fyrir fólk með heilabilun: Fríðuhús við Austurbrún 31 í Reykjavík, Drafnarhús við Strandgötu 75 í Hafnarfirði og Maríuhús við Blesugróf 27 í Reykjavík.
FAAS eru landssamtök og starfa tenglar félagsins á Akureyri, á Sauðárkróki og á Seyðisfirði.
Fræðslufundir - félagið er með opna fræðslufundi yfir vetrarmánuðina og eru þeir auglýstir í fréttabréfi FAAS, sem kemur út sjö til átta sinnum á ári, og í fjölmiðlum.
Fræmkvæmdastjóri FAAS Svava Aradóttir.
