Aðildarfélög

Félag lesblindra á Íslandi

Ármúla 7b, 108 Reykjavík. sími - 534-5348 og 892-1452, fli@fli.is og  snaevar@fli.is  -  www.fli.is

Tilgangur félagsins er að vinna að hvers konar menningar- og hagsmunamálum lesblindra með því meðal annars:

  • að vinna að því að jafna aðstöðu lesblindra til náms.
  • að styðja allar framkvæmdir sem miða að almennri menntun og sérmenntun lesblindra.
  • að vinna að því að lesblindir sem að öðru leyti eru vinnufærir, geti fengið atvinnu við sitt hæfi; Skal félagið stuðla að því að koma lesblindu fólki að þeim störfum er það getur leyst af hendi hjá hvers konar atvinnufyrirtækjum, svo og stuðla að því að lesblindir geti sjálfir rekið atvinnu sér til lífsframfæris.
  • að eiga aðild að og starfrækja fyrirtæki og vinnustaði sem veita lesblindu fólki atvinnu og styrkja hagsmuni þess.
  • að nýta starfskrafta lesblindra sem best. að hafa áhrif á ríkisvaldið og sveitarstjórnir, ýmis hagsmunasamtök og einstaklingsframtakið lesblindum til gagns.
  • að stuðla að hvers kyns félagslegri og menningarlegri aðstoð við lesblind fólk.
  • að stuðla að vísindalegum rannsóknum og alþjóðasamvinnu í þágu lesblindra.
  • að stuðla að lagasetningu í þágu lesblindra.
  • að þeir lesblindir einstaklingar, sem vegna veikinda sinna geta ekki unnið fyrir sér sjálfir, eigi rétt á nægum lífeyri.
  • að öll sú læknishjálp, sérfræðiaðstoð og þjálfun, sem kostur er á, sé veitt lesblindum, ásamt þeim hjálpartækjum, sem þeir þurfa á að halda.
  • að vekja áhuga og skilning almennings á málefnum lesblindra með útgáfu- og kynningarstarfsemi.

Félagið skal að öðru leyti gæta hagsmuna lesblindra gagnvart stjórnvöldum, stofnunum, einstaklingum og fyrirtækjum.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.