Félag nýrnasjúkra

Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna þeirra sem veikjast af alvarlegum nýrnasjúkdómum og aðstandenda þeirra. Félagið nær tilgangi sínum með því:

  1. Að veita þeim aðstoð sem veikjast af alvarlegri nýrnabilun þannig að þeir geti unnið úr því áfalli sem það er að missa heilsuna.
  2. Að halda uppi fræðslu um nýrnasjúkdóma og kjör þeirra sem þjást af alvarlegri nýrnabilun.
  3. Að fylgjast með og kynna nýjungar á sviði meðferðar sjúkdóma í nýrum.
  4. Að efla samstarf við lækna og hjúkrunarfræðinga og aðra þá sem láta sig varða heilbrigði og velferð nýrnasjúkra.
  5. Að bæta aðstöðu við skilun innan lands.
  6. Að starfa í samvinnu við erlend félög nýrnasjúkra.






Þetta vefsvæði byggir á Eplica