Geðhjálp

Geðhjálp var stofnað 9.október 1979 og er félag þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra, og annarra sem láta sig geðheilbrigðismál varða. Tilgangur félagsins er að bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða svo og aðstandenda þeirra. Að markmiði þessu er unnið með því m.a.:

  • Að sjá til þess að jafnræðisregla stjórnarskrárinnar sé virt og þeim mannréttindarsáttmálum sem Ísland á aðild að sé framfylgt.
  • Að efla alla forvarnavinnu og umbætur á sviði geðheilbrigðismála með fræðslu og vitundarvakningu, m.a. til að draga úr fordómum.
  • Að stuðla að endurbótum í þjónustu við geðsjúka og þá sem eru með geðræn vandamál.
  • Að gera tillögur í þessum efnum og skapa umræðu um þau í samfélaginu.
  • Að efla gagnrýna og málefnalega umræðu um geðheilbrigðisþjónustu og þann grundvöll sem hún hvílir á.
  • Að stuðla að því að þeim sem eru með geðræn vandamál verði búin skilyrði til að njóta hæfileika sinna, menntunar og starfsorku.
  • Að hafa samvinnu við önnur félagasamtök og hópa er vinna að sömu eða svipuðum markmiðum, eða gerast aðili að þeim.

Geðhjálp er með aðsetur að Túngötu 7 í Reykjavík. Dagleg þjónusta Geðhjálpar er margþætt, en allar upplýsingar um hana eru að finna á vefnum www.gedhjalp.is





Þetta vefsvæði byggir á Eplica