Aðildarfélög

Blindravinafélag Íslands

Sæviðarsundi 54,104 Reykjavík, sími - 581-2144, netfang: sehe@isl.is

Markmið félagsins var annars vegar hjálp til þess að fyrirbyggja blindu og hinsvegar hjálp til þeirra sem voru orðnir blindir. Nú hefur heilbrigðisþjónustan tekið við forvarnarstarfinu.

Blindravinafélagið hefur rak vinnustofuna Blindraiðn, frá árinu 1933 og allt þar til hún var lögð niður 2003, en þá voru eignir leystar upp og hluti þeirra lagður til Þórsteinssjóðs. Til minningar um Þórstein Bjarnason sem helgaði líf sitt hjálpar til blindra og sjónskertra á Íslandi á 20. öld án þess að taka nokkru sinni laun fyrir heldur lagði félaginu til úr eigin vasa.

Þórsteinssjóði er í fyrsta lagi ætlað að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla Íslands.

Í öðru lagi er Þórsteinssjóði ætlað að efla rannsóknir á öllum fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, afleiðingum hennar og ýta undir tækifæri blindra og sjónskertra til að auðga og efla líf sitt.

Sérstök áhersla er lögð á styrki í félags- og hugvísindum er falla að tilgangi sjóðsins. Styrkir eru veittir til verkefna er falla að þessu markmiði s.s. til rannsókna. Styrki má veita til stúdenta í rannsóknatengdu framhaldsnámi við Háskóla Íslands eða starfandi vísindamanna innan Háskóla Íslands.

Sjóðurinn er í umsjá og vörslu Styrktarsjóða Háskóla Íslands og fellur undir sjóði sem lúta yfirstjórn Háskóla Íslands.

Framtíðarverkefni Blindravinaféalgs Íslands eru, svo sem verið hefur, að veita styrk til dvalarheimila aldraðra til að greiða fyrir dvöl blindra þar. Félagið á m.a. tvö vistrými á Hrafnistu í Reykjavík og aðild að sjálfseignarstofnuninni Eir, sem rekur hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Þá veitir Blindravinafélagið þeim sem ætla að vinna að málefnum blindra styrki til náms og kynnisferða.

Formaður: Helga Eysteinsdóttir, Sæviðarsundi 54, 104 Reykjavík.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 





þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.