Hringsjá útskrifar 14 nemendur
Þann 17. desember sl. útskrifuðust 14 nemendur frá Hringsjá – náms- og starfsendurhæfingu. Athöfnin fór fram í húsnæði skólans að Hátúni 10d í Reykjavík. Allir nemendurnir sem útskrifaðir voru að þessu sinni eru annaðhvort skráðir í framhaldsnám eða hafa tryggt sér atvinnu á almennum vinnumarkaði.
Lesa meira
Skrifstofa ÖBÍ verður lokuð yfir hátíðirnar
Lokað verður 24. desember á skrifstofu Öryrkjabandalags Íslands og Brynju hússjóðs Öryrkjabandalagsins. Skrifstofan opnar að nýju mánudaginn 5. janúar kl. 9.00.
Frítekjumark kr. 100.000 helst áfram á launatekjur
Samþykkt var á Alþingi í gær frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, sem felur í sér að ákvæði um 100.000 króna frítekjumark á atvinnutekjur örorku- og endurhæfingarlífeyris mun gilda áfram þar til nýtt örorkumatskerfi hefur verið tekið í notkun. Að óbreyttu hefði ákvæðið fallið úr gildi 1. janúar næstkomandi.
Lesa meira
Skerðingu á kjörum örorkulífeyrisþega mótmælt
Framkvæmdastjórn ÖBÍ mótmælir boðaðri skerðingu á kjörum lífeyrisþega.
Lesa meira
Ný reglugerð um hjálpartæki - styrkir hækka
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur sett nýja reglugerð um hjálpartæki sem felur í sér verulega hækkun styrkja vegna tækjanna. Meginbreytingin frá reglugerðum nr. 460/2003 og nr. 752/2002 felst í hækkun styrkja, sem tilgreindir eru í fastri krónutölu í reglugerðunum.
Lesa meira
Lagastoð skortir til að takmarka bifreiðakaupastyrki
Umboðsmaður Alþingis telur að reglugerð sem kveður á um að styrkur til bifreiðakaupa hreyfihamlaðra skuli aðeins veittur á fimm ára fresti, eigi ekki stoð í lögum um almannatryggingar.
Lesa meira
Nýr vefur Gegnis vottaður aðgengilegur
Nýverið var vefur Gegnis (www.gegnir.is) vottaður aðgengilegur af SJÁ og Öryrkjabandalagi Íslands. Fékk vefurinn vottun um forgang 1 og 2, en vottun um forgang 1 er lágmarkskrafa sem gerð er verðandi aðgengi á vefsíðum.
Lesa meira
Verðlaunahafar Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2008
Guðjón Sigurðsson hlaut í gær Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2008 í flokki einstaklinga, Tónstofa Valgerðar í flokki fyrirtækja og Akureyrarbær - búsetudeild, í flokki stofnana.
Lesa meira
Til hamingju með daginn!
Í dag, 3. desember, er alþjóðadagur fatlaðra undir kjörorðinu, Virðing og réttlæti fyrir alla!
Lesa meira
Hvatningarverðlaun ÖBÍ veitt öðru sinni á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember
Undirbúningsnefnd valdi þrjár tilnefningar úr hverjum flokki. Sérstök dómnefnd tók síðan endanlega afstöðu til verðlaunahafa sem kunngert verður við verðlaunaafhendinguna sem fram fer þann 3. desember, í Salnum í Kópavogi.
Lesa meira
Ályktun útifundar BSRB, Félags eldri borgara í Reykjavík, Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags Íslands
Í ályktuninni er m.a. skorarð á stjórnvöld að beita öllum tiltækum ráðum til að verja velferðarkerfið sem byggt hefur verið upp af almenningi á undanförnum áratugum. Jafnframt var þess krafist að staðið verði við lögbundin ákvæði um hækkun grunnbóta almannatryggingakerfisins nú um áramót. Einnig var skorað á þá sem ofurlauna nutu að axla ábyrgð.
Lesa meira
Ályktun Evrópusamtaka fatlaðra vegna fjármálakreppunnar - Fatlað fólk gjaldi ekki fyrir kreppuna
Á fundi sem Evrópusamtök fatlaðra héldu í París 16. nóvember sl. og Halddór Sævar Guðbergsson og Valgerður Ósk Auðunsdóttir sátu fyrir hönd ÖBÍ var eftirfarandi ályktun samþykkt.
Lesa meira
Hvert er hægt að leita?
Yfirlit yfir hjálparsíma og upplýsingavefi fyrir þá sem eru í vanda á þessum erfiðu tímum í þjóðfélaginu.
Lesa meira
Þröngt í búi íslenskra öryrkja erlendis
Síðast liðna daga hefur töluvert verið haft samband við starfsfólk ÖBÍ af íslenskum öryrkjum sem búa erlendis. Þeir bera sig illa þar sem í mörgum tilfella hafa greiðslur frá TR ekki borist þeim enn.
Lesa meira
Eitt kerfi fyrir alla?
Öryrkjabandalag Íslands í samstarfi við Heilbrigðisráðuneytið stóðu fyrir málþingi þann 2. október sl. að Hótel Nordica, sem bar yfirskriftina Eitt kerfi fyrir alla? - Greiðsluþátttaka almennings í heilbrigðiskerfinu.
Lesa meira
Guðmundur Magnússon nýr varaformaður ÖBÍ
Á aðalfundi ÖBÍ laugardaginn 4. október var meðal annarra kjörinn nýr varaformaður.
Lesa meira
Ályktun aðalfundar ÖBÍ 4. október 2008
Á aðalfundi ÖBÍ sem haldinn var í dag að Grand Hóteli Reykjavík var eftirfarandi ályktun samþykkt.
Lesa meira
Sjálfsstyrkingarnámskeið í Hringsjá haust 2008
Nú er tækifærið að bóka sig sem fyrst á sjálfstyrkingarnámskeið hjá Hringjsá, sem haldið verður á mánudögum og miðvikudögum frá 3. nóvember til 10. desember nk.
Lesa meira
Ályktun aðalstjórnar ÖBÍ 4. september 2008
Á fundi aðalstjórnar ÖBÍ þann 4. september var samþykkt samhljóða ályktun sem fer hér á eftir.
Lesa meira
Tryggur nýr þjónustuvefur TR
Nýr þjónustuvefur Tryggur, fyrir viðskiptavini Tryggingastofnunar ríkisins, var opnaður í gær.
Lesa meira
Heitið á hlaupara til styrktar aðildarfélögum ÖBÍ
Flest aðildarfélaga ÖBÍ eiga hlaupara sem heita má á í Reykjavíkurmarathoni Glitnis 23. ágúst nk.
Lesa meira
Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland-Aserbaidsjan
Aðgöngumiðar fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega verða afhentirá skrifstofu KSÍ mánudaginn 18. og þriðjudaginn 19. ágúst, gegn framvísun viðeigandi skírteina.
Lesa meira
Nýr starfsmaður á skrifstofu ÖBÍ.
Þórný Björk Jakobsdóttir hóf störf á skrifstofu ÖBÍ 7. júlí sl., hún er m.a. táknmálstúlkur og mun því verða boðið upp á táknmálstúlkun í viðtölum á skrifstofu ÖBÍ ef þess er óskað.
Lesa meira
Gildi áfrýjar lífeyrissjóðsdómi
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að áfrýja lífeyrissjóðsdómi til Hæstaréttar.
Lesa meira
Varnarsigur ÖBÍ í lífeyrissjóðsmáli.
Dómur var felldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í svokölluðu lífeyrissjóðsmáli í dag. Gildi lífeyrissjóði var óheimilt að draga frá örorkulífeyri stefnanda, Margrétar Ingibjargar Marelsdóttur, þann örorkulífeyri og tekjutryggingu er hún fær frá Tryggingastofnun ríkisins.
Lesa meira
Breytingar á lífeyrisgreiðslum frá TR
Þann 1. júlí hækkaði frítekjumark atvinnutekna örorkulífeyrisþega úr 25.000 í 100.000 og inn kom frítekjumark kr. 25.000 á lífeyrissjóðstekjur. Einnig hækkaði aldurstengd uppbót.
Lesa meira
Breyttur opnunartími!
Breyting verður á föstudögum á opnunartíma skrifstofu Öryrkjabandalags Íslands og Brynju hússjóðs ÖBÍ. Frá 1. júní til 31. ágúst verður opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9:00 til 15:00 og föstudaga frá kl. 9:00 til 13:00.
Góður árangur af náms- og starfendurhæfingu Hringsjár
Átta nemendur útskrifuðust frá náms- og starfsendurhæfingu Hringsjár 20. maí sl. og eru allir skráðir í framhaldsnám í almennum skólum, eða hafa tryggt sér atvinnu á almennum markaði.
Lesa meira
Út er komin, BÓKIN UM EINHVERFU, spurt og svarað
Umsjónarfélag einhverfra gefur bókina út í tilefni af 30 ára afmæli félagsins.
Lesa meira
Frítekjumark hækkar í 100.000 frá 1. júlí.
Í baráttu ÖBÍ fyrir bættum kjörum öryrkja og virkrar þátttöku þeirra í samfélaginu, er þessi breyting m.a. í samræmi við áherslur bandalagsins.
Lesa meira
Húsaleigubætur hækka frá 1. apríl
Húsaleigubætur hækka frá 1. apríl að telja. Félags- og tryggingamálaráðherra undirritaði reglugerð þar um 7. apríl síðastliðinn.
Lesa meira
Dæmi um breytingar á örorkulífeyri frá 1. janúar 2007-1. apríl 2008
ÖBÍ hefur reiknað út nokkur dæmi sem snúa að breytingum bóta fyrir örorkulífeyrisþega sem býr einn og hjónafólk þar sem báðir aðilar eru á örorkubótum. Á heimasíðu TR má finna dæmi um breytingar hjá hjónafólki eftir að tekjutenging var afnumin.
Lesa meira
Umsóknir um styrki.
Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfrestur er til 11. maí nk.
Lesa meira
4% hækkun almannatryggingabóta mótmælt!
Öryrkjabandalag Íslands, Alþýðusamband Íslands og Landssamband eldri borgara mótmæla harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka elli- og örorkulífeyri um einungis kr. 4.000-5.000 í kjölfar nýgerðra kjarasamninga.
Lesa meira
Bætur almannatrygginga hækka um 4%
Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um hækkun lífeyris almannatrygginga hjá öryrkjum og ellilífeyrisþegum um 4% frá og með 1. febrúar síðastliðnum.
Lesa meira
Skerðing bóta vegna tekna maka afnumin
Ný lög um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um málefni aldraðra var samþykkt á Alþingi 13. mars síðastliðinn. Hluti breytinganna gengur í gildi 1. apríl næstkomandi þar á meðal afnám skerðinga á bætur vegna tekna maka.
Lesa meira
Vetraríþróttir fatlaðra
Íþróttasamband Fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöð Íslands á Akureyri hafa staðfest formlegt samstarf við Winter Park í Colorado vegna þróunarstarfs á sviði vetraríþrótta- og útivistar fyrir fatlaða.
Lesa meira
Nýr framkvæmdastjóri ÖBÍ
Lilja Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri til Öryrkjabandalags Íslands.
Lesa meira
Breytingar á almanntryggingum samkvæmt frumvarpi
Á Alþingi 19. febrúar síðastliðinn lagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, fram frumvarp um breytingar á lögum almannatrygginga nr. 100/2007
Lesa meira
Frávísunarkröfu Gildis hafnað.
Þann 19. febrúar síðastliðinn fór Gildi lífeyrissjóður fram á að stefnu ÖBÍ, fyrir hönd eins þeirra lífeyrisþega sem fengu bréf um "lækkun eða niðurfellingu" örorkulífeyrisgreiðslna frá og með 1. nóvember 2007, yrði vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Lesa meira
Halldór Sævar Guðbergsson kjörinn formaður ÖBÍ
Halldór Sævar Guðbergsson var kjörinn formaður Öryrkjabandalags Íslands á aukafundi milli aðalfunda ÖBÍ sem haldinn var síðdegis í dag.
Lesa meira
Lesa meira
Framtalsaðstoð 2008
Líkt og fyrri ár mun Skattstjórinn í Reykjavík veita þeim framtalsaðstoð sem eru ófærir um að gera framtal sitt sjálfir að heilsufarsástæðum.
Lesa meira
ÖBÍ mótmælir hækkun á gjaldtöku um allt að 70%
Á fundi framkvæmdastjórnar ÖBÍ fyrr í dag var fagnað ákvörðun heilbrigðisráðherra að fella niður komugjöld barna á heilsugæslustöðvum, en um leið var mótmælt hækkun á gjaldtöku fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu öryrkja um allt að 70%. Sjá yfirlýsingu framkvæmdastjórnar ÖBÍ frá fundinum hér fyrir neðan.
Lesa meira
Lesa meira

