Fréttir
Tillögur Tryggva Þórs Herbertssonar um aðgerðir til að draga úr fjölgun öryrkja
Úr skýrslunni Fjölgun öryrkja á Íslandi - Orsakir og afleiðingar (Útgefin af Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, vorið 2005)
Forsenda þessa sjónarhorns er m.a. sú, að örorkulífeyrir verði alltaf að vera umtalsvert lægri en lægstu laun á vinnumarkaði, annars verði til hvati fyrir fullfrískt láglaunafólk til að sækja inn í örorkulífeyriskerfið. Af því hljótist það sem í frjálshyggjuhagfræði er kallað “siðferðisvandi” eða “freistnivandi” (e: moral hazard) (sjá einnig á bls. 34-35 í skýrslu TÞH). Forsendan hér er sú, að flestir vilji frekar eyða lífi sínu í iðjuleysi en að stunda launaða vinnu og að mjög auðvelt sé að fá örorkumat. Í framkvæmd eru afleiðingar þessa sjónarhorns þær, að öryrkjar og aðrir lífeyrisþegar sem ekki hafa aðra lífsbjörg, eru dæmdir til að festast í mestu fátækt samfélagsins. Þessi stefna er almennt ekki ríkjandi í Skandinavíu. Þar er markmiðið að tryggja öryrkjum jafnrétti og tekjur sem eru sambærilegar við meðaltekjur samfélagsins.
Á bls. 4 í skýrslu Tryggva segir eftirfarandi: “Til að halda samfélagslegri bjögun í lágmarki ríður á að gaumgæfa hvort ekki megi hverfa af þeirri braut sem mörkuð er af síauknum fjárhagslegum stuðningi við öryrkja.”
Á bls. 5 segir eftirfarandi: “Í 3. kafla kemur í ljós að mikill fjárhagslegur hvati er fyrir láglaunafólk að leita eftir örorkumati, enda getur það hækkað laun sín umtalsvert með því móti.”
Í niðurstöðum hinna samandregnu niðurstaðna eru svo settar fram tillögur um hvernig stjórnvöld eigi að stemma stigu við fjölgun öryrkja. Tillögur TÞH eru í þremur liðum (bls. 10):
- “Sennilega er áhrifamesta aðgerðin til að hvetja öryrkja til að fara út á vinnumarkaðinn, og letja fólk til að sækja um örorkumat, sú að draga úr fjárhagslegum ávinningi af því að vera á örorkubótum, nema þegar um algjört neyðarbrauð er að ræða.” Í skýrslunni er því mælt með að kjör öryrkja séu rýrð frá því sem nú er.
- “að herða reglur um hvernig örorka einstaklinga er metin.” Vísað er til þess að nýr örorkumatsstaðall hafi verið innleiddur 1999 og gefið í skyn að auðveldara sé nú en áður að fá örorkumat. Það er þó ekki sannað í skýrslunni.
- Aðgerðir til að koma öryrkjum aftur út á vinnumarkað: “Þessar aðgerðir gætu falist í mun meiri eftirfylgni og endurmati (á örorku) en nú tíðkast, auk þess sem fjölga mætti möguleikum til endurmenntunar og starfsþjálfunar.”
Spyrja má hvort Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, eða ríkisstjórnin, geri þessar tillögur að sínum?

