Fréttir
Hafdis_Gisladottir, framkvæmdastjóri ÖBÍ
Hafdís Gísladóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ
Nýr framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands
Hafdís Gísladóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands og tekur hún til starfa þann fyrsta febrúar nk. Frá ráðningu hennar var formlega gengið á fundi framkvæmdastjórnar ÖBÍ þriðjudaginn 17. janúar.
Hafdís er leikskólakennari að mennt með sérkennsluréttindi frá Háskólanum í Osló. Hún er nú við það að ljúka meistaranámi í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands. Hafdís var framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra frá 1997 til 2005. Á síðasta ári gegndi hún stöðu framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar - Miðborgar og Hlíða. Hafdís var fulltrúi í aðalstjórn ÖBÍ frá 1997 til 2003 og átti sæti í framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins frá 1998 til ársins 2000. Hafdís er boðin velkomin til starfa.
Framkvæmdastjórn ÖBÍ

