Fréttir
oryrki.net
Níu ungmenni hafa að undanförnu unnið að gerð heimasíðu og stuttra myndbanda í samstarfi við Reykjavíkurborg og Hitt húsið að því að bæta ímynd hreyfihamlaðra
Á vefsíðunni oryrki.net sem þeir munu halda úti allan ársins hring má finna margvíslegan afrakstur vinnu þeirra í sumar. Með þessu starfi sínu vilja ungmennin gera sitt til að bæta ímynd hreyfihamlaðra og vekja fólk til umhugsunar um staðlaðar ímyndir samfélagsins. Myndböndin má skoða á heimasíðu þeirra oryrki.net

